Tónlist

Stærsta ár Sólstafa

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Sólstafir eru komnir í tónleikaferð og gera ráð fyrir miklum ferðalögum um heim allan á árinu.
Sólstafir eru komnir í tónleikaferð og gera ráð fyrir miklum ferðalögum um heim allan á árinu. Mynd/Bjorn Arnason
„Þetta verður líklega stærsta ár Sólstafa hingað til. Við erum bókaðir frá og með deginum í dag fram undir lok apríl,“ segir Aðalbjörn Tryggvason, söngvari hljómsveitarinnar Sólstafa.

Sveitin er á tónleikaferðalagi um Evrópu og er nú stödd í Hamborg í Þýskalandi. „Þetta er um það bil mánaðartúr sem við erum á núna. Við tókum viku í Englandi, viku í Frakklandi og Þýskalandi. Við förum næst til Skandinavíu, þá til Rússlands og svo förum við til Grikklands og Búlgaríu líka,“ segir Aðalbjörn um hið mikla ferðalag sem sveitin er á.

Sólstafir áttu einnig annasamt ár í fyrra. „Við fórum í tvö tónleikaferðalög til Bandaríkjanna á síðasta ári og vorum þar um það bil sex vikur. Við spiluðum á fimmtán tónleikahátíðum síðasta sumar og tókum líka mánaðartúr um Evrópu.“

Sama er upp á teningnum í ár og ætla Sólstafir að koma fram á ýmsum tónlistarhátíðum í sumar. „Ég má ekki segja á hvaða hátíðum við spilum að svo stöddu.“

Eftir sumarið gerir Aðalbjörn ráð fyrir því að sveitin hoppi upp í rútu og haldi af stað í tónleikaferð á nýjan leik. „Ég geri ráð fyrir því að strax 1. september hoppum við upp í rútu og tökum annan Evróputúr. Við tökum líka mögulega Suður-Ameríku- og Asíutúr. Við erum mikið að horfa í þessa áttina, til Suður-Ameríku og Asíu,“ bætir Aðalbjörn við.

Sólstafir hafa verið iðnir við tónleikaferðalög í um tíu ár, tekur þetta tónleikahald ekki sinn toll? „Þetta er skemmtilegt og er eitthvað sem mann langar að gera. Þetta er auðvitað val. Við höfum verið „túringband“ í tíu ár, fórum fyrst til Danmerkur árið 2005. Við getum samt orðið geðveikir hver á öðrum, bókin kemur líklega út eftir nokkur ár og í nokkrum mismunandi útgáfum,“ segir Aðalbjörn léttur í lundu. Hann segir mikilvægt að heimsækja sömu staðina reglulega til þess að minna á sig.

Það hefur valdið talsverðu fjaðrafoki á samfélagsmiðlum að trommuleikari sveitarinnar, Guðmundur Óli Pálmason, er ekki með sveitinni á tónleikaferðalagi þessa stundina. Hvorki Guðmundur né Aðalbjörn vildu tjá sig um málið að svo stöddu.

Trommuleikarinn Karl Petur Smith leysir Guðmund af á bak við settið þessa dagana.

Nýjasta plata Sólstafa, Ótta, fékk frábæra dóma og var meðal annars valin fimmta besta plata ársins af Metal Hammer í Bretlandi og fleiri þekktum tímaritum. „Það er ágætis klapp á bakið að komast á lista og fá góða dóma. Það er mikil vinna að búa til tónlist og því gott að fá klapp á bakið.“

Aðalbjörn segir sveitina þó ekki ætla að semja tónlist fyrir nýja plötu fyrr en á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×