Sport

Er 48 árum eldri en yngstu keppendurnir um helgina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stangarstökkvarinn Kristján Gissurarson hefur verið að í marga áraugi.
Stangarstökkvarinn Kristján Gissurarson hefur verið að í marga áraugi. vísir/anton
Það munar tæpri hálfri öld á yngsta og elsta keppendanum á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fer fram í nýju frjálsíþróttahúsi í Kaplakrika í Hafnarfirði um helgina.

Blikinn Kristján Gissurarson hefur skráð sig í stangarstökk karla en hann er fæddur árið 1953 og fagnar því 62 ára afmæli sínu í júní næstkomandi.

Kristján Gissurarson hefur verið að keppa á stórmótum öldunga undanfarin ár og á meðal annars Norðurlandamótið í flokki 55 til 59 ára sem er stökk upp á 4,11 metra.

Yngstu keppendurnir eru ÍR-stelpurnar Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Helga Margrét Haraldsdóttir sem eru báðar fæddar árið 2001 sem þýðir að þær eru 48 árum yngri en Kristján.

Fríða Rún Þórðardóttir í ÍR er elsta konan en hún verður 45 ára um næstu helgi. Fríða Rún tekur þátt í tveimur greinum á mótinu, 1500 metra hlaupi og 3000 metra hlaupi.

Aðrir keppendur sem hafa skráð sig til leiks og eru komnir á fimmtugsaldurinn eru Ólafur Guðmundsson úr HSK (45 ára), Eva Skarpaas Einarsdóttir úr ÍR (43), Ágúst Bergur Kárason úr UFA (42) og Hörður Jóhann Halldórsson úr FH (40).

Mótið um helgina er fyrsta Meistaramótið sem fer fram í nýrri frjálsíþróttahöll FH-inga. Mikill fjöldi keppenda er skráður á mótið og þar á meðal allt okkar besta íþróttafólk. FH-ingar búast við góðum árangri við þessa glænýju keppniaðstöðu.

„Búast má bæði við metum og bætingum um helgina og ekki ólíklegt miðað við framfarir síðustu móta, að Íslandsmet falli,“ segir í frétt um mótið á frjálsíþróttasíðu FH-inga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×