Innlent

Aldraðir með heilabilun: Bundnir í stóla og gefið róandi vegna manneklu

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Svava Bjarnadóttir hefur starfað á heilabilunardeildum í Danmörku og Íslandi.
Svava Bjarnadóttir hefur starfað á heilabilunardeildum í Danmörku og Íslandi. fréttablaðið/andri marínó
Svava Bjarnadóttir varð mjög undrandi á aðstöðunni fyrir aldraðra á Íslandi þegar hún hóf störf á íslensku hjúkrunarheimili fyrir þremur árum. Svava hafði lært sjúkraliðann í Danmörku þar sem hún sérhæfði sig í umönnun heilabilaðra og starfaði í kjölfarið á hjúkrunarheimili þar í landi. 

„Ég fékk stöðu sem verkefnastjóri á heilabilunardeild hér á Íslandi og varð mjög brugðið við að upplifa muninn á þjónustunni á Íslandi og í Danmörku. Hér er fólk frekar bundið í hjólastóla og gefið róandi lyf, líklega vegna manneklu. Í Danmörku eru gerðar miklu strangari kröfur og allt gert til að sneiða hjá slíkum úrræðum. Ef róandi lyf er gefið er það gert að mjög ígrunduðu máli og það er sérstakur ráðgjafi frá öldrunargeðdeild sem ákveður hvort viðkomandi vistmaður er ólaður niður. Það sama gildir um beisli í rúmi.“

Ein lyfta á allri deildinni

Aðstæður og aðbúnaður hér á landi olli Svövu áhyggjum af bæði vistmönnum og starfsfólki.

„Fólk er í tveggja manna herbergjum og engin aðstaða er til að koma fyrir lyftum eða öðrum hjálpartækjum. Starfsfólkið notar eigin krafta til að lyfta fólki. Það er eingöngu ein lyfta og eitt lyftustykki fyrir alla deildina. Það segir sig sjálft að þetta er ekki fólki bjóðandi,“ segir Svava og bætir við að hún vilji alls ekki gera lítið úr því duglega fólki sem starfi á hjúkrunarheimilum en það vanti sárlega faglært starfsfólk sem tali íslensku.

Frásagnir aðstandenda aldraðra í helgarblaði Fréttablaðsins ríma við frásögn Svövu um manneklu, tímaskort og verkefnahlaðið starfsfólk á hjúkrunarheimilum sem ekki getur sinnt vistmönnum sem skyldi.mynd/getty
„Í Danmörku vann ég á sextíu manna heimili og þar var ekkert ófaglært starfsfólk. Þeir sem hafa áhuga á starfinu eru hvattir til að fara í nám og fá fulla greiðslu á meðan á námi stendur. Einnig er gerð krafa um að fólk tali tungumálið.“

Ekki mannsæmandi laun

Þegar Svava leitaði að starfi eftir að hún flutti til landsins vildu allir nýta sérþekkingu hennar en enginn vildi borga mannsæmandi laun. „Launamálin voru algjör frumskógur og ég fékk látlaust þau svör að nú væri verið að skera niður út af hruninu. Á einu hjúkrunarheimilinu sem ég sótti um starf hjá var mér boðin byrjunarlaun sjúkraliða þrátt fyrir reynslu og sérhæfingu.“

Svava segir manneklu og fjárskort vissulega bitna á sjúklingunum. Að aðeins nauðsynlegustu þörfum hvers og eins sé sinnt og lítil örvun sé í dagskránni. Eftir tíu mánaða vinnu sem sjúkraliði sagði hún upp starfi sínu og fór að vinna sem dagmóðir.

„Þetta er einnig reynsla annarra sjúkraliða sem hafa lært í Danmörku. Danskir þegnar fá mun betri þjónustu, betri tækjakost og rýmið er margfalt betra. Hver og einn vistmaður hefur sín hjálpartæki og aðstöðu fyrir hjólastól í herbergi sínu eða íbúð. Einnig hafa vistmenn svokallaðan tengil sem sér um að hvorki skorti hjálp né nauðsynjar og hver tengill hefur ekki nema þrjá skjólstæðinga svo allir fá þá þjónustu sem þeim ber.“


Tengdar fréttir

Ráðherra fékk sting í hjartað vegna aðstæðna aldraðra

„Það er sárt að heyra af svona tilvikum en hin stóra mynd er aftur á móti sú að starfsfólk leggur sig allt fram við það að veita vistmönnum þessara heimila alla þá þjónustu, sem það hefur tök á að veita,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.

Samfélagið bregst

Öll eigum við eitt sameiginlegt. Það er að vilja verða gömul, og þá heilsuhraust. Fjarri er að öllum takist það.

Umönnun aldraðra: „Komið betur fram við hunda en okkur.“

Aðstandendur segja að umönnun eldra fólks á hjúkrunarheimilum sé fyrir neðan allar hellur. Mannekla og fjárskortur kemur niður á samskiptum við vistmenn. Margir upplifa sig afskipta. Rætt er við fagaðila um úrlausn mála.

Frekar afskipt ef mönnun er of lítil

Búast má við að tilhneyging sé meiri til þess að vistmenn á hjúkrunarheimilum séu afskiptir á þeim stöðum sem ekki geta uppfyllt gæðaviðmið Landlæknis um fjölda starfsmanna, segir Laura Scheving Thorsteinsson hjá Landlæknisembættinu.

Hin hlandgullnu ár

Við berum æ fleiri til þess gæfu að fá að lifa lengur. Að verða gömul og grá á ævikvöldinu ljúfa. Eða, hversu mikil gæfa er það?

Lægstbjóðandi mannúðar

Ekki er heppilegt fyrirkomulag við flutninga á fötluðu fólki að skipta oft um bílstjóra þannig að þeir þekki ekki þarfir og venjur þeirra sem þjónustunnar njóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×