Tónlist

Vill fá Noel Gallagher

Barat og Doherty á sviði með The Libertines.
Barat og Doherty á sviði með The Libertines. Vísir/Getty
Carl Barat úr The Libertines vill að Noel Gallagher, fyrrverandi liðsmaður rokkaranna í Oasis, verði upptökustjóri næstu plötu hljómsveitarinnar.

„Það væri frábært að fá að vinna með honum,“ sagði Barat í nýjasta hefti NME.

Upptökur eiga að hefjast í apríl á Taílandi ef allt gengur að óskum. „Ég ætla að senda Noel Gallagher tölvupóst. Ég veit að hann er mjög upptekinn en vonandi hefur hann smátíma Libertines sem elska hann mjög mikið,“ sagði hann.

Lengi hefur verið beðið eftir næstu plötu The Libertines, sem verður sú fyrsta í ellefu ár. Hljómsveitin sendi frá sér stutt myndband í desember þar sem sýnt var frá undirritun á plötusamningi við Virgin/EMI í Taílandi, þar sem Pete Doherty, annar liðsmaður sveitarinnar, er í meðferð við eiturlyfjafíkn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.