Lífið

Kanye er svarta útgáfan af mér

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Madonna segist eiga margt sameiginlegt með Kanye West.
Madonna segist eiga margt sameiginlegt með Kanye West.
Poppdrottningin Madonna lét hafa eftir sér í viðtali að Kanye West væri hin nýja Madonna.

„Kanye er nýja ég. Kanye er svarta útgáfan af mér,“ sagði hún í samtali við New York Daily News.

Madonna fékk Kanye West til þess að vera með sér í þremur lögum á nýju plötunni sinni, Rebel Heart. Hún segir þau eiga það sameiginlegt að þau fari nálægt línunni og jafnvel yfir hana, og reyni á þolrif fólks.

„Við stöndum saman í þessu, að fara alltaf lengra og lengra nær línunni,“ segir hún að lokum.

Hér fyrir neðan má sjá hluta af viðtali við hana sem var tekið af Time þar sem hún ræðir meðal annars Instagram-notkun sína.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.