Íslenski boltinn

Sér ekki eftir neinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson. skrifar
Gunnar Nielsen leikur með Stjörnunni í sumar. Hér er hann með þjálfara Garðabæjarliðsins, Rúnari Páli Sigmundssyni.
Gunnar Nielsen leikur með Stjörnunni í sumar. Hér er hann með þjálfara Garðabæjarliðsins, Rúnari Páli Sigmundssyni. Vísir/Stefán
Gunnar Nielsen, landsliðsmarkvörður Færeyja, vill sýna sig og sanna upp á nýtt með Íslandsmeisturum Stjörnunnar en hann samdi nýverið við liðið og hefur nú hafið æfingar í Garðabænum. Hann var kynntur fjölmiðlum á blaðamannafundi á Samsung-vellinum í gær.

„Ég er ánægður með að vera kominn hingað til Stjörnunnar,“ sagði Gunnar sem er hálfur Íslendingur en móðir hans er frá Siglufirði. Gunnar ólst þó upp í Færeyjum en hefur margsinnis heimsótt Ísland.

Þessi 28 ára gamli markvörður á langan feril að baki og hefur verið á mála hjá bæði Blackburn og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Þar fékk hann hins vegar fá tækifæri en varð fyrsti Færeyingurinn til að spila í ensku úrvalsdeildinni er hann kom inn á fyrir Shay Given í leik City gegn Arsenal árið 2010.

En tíð meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum og það var ekki fyrr en hann samdi við Motherwell í Skotlandi árið 2013 að hann fékk að spila reglulega. En samningi hans við félagið var rift í síðasta mánuði og vildi hann ekki greina frá ástæðum þess.

„Ég veit að ég hef átt skrýtinn feril og þegar maður ákveður að semja við stór lið eins og Blackburn og Manchester City er áhættan vissulega sú að það sé erfitt að komast í liðið. En mér fannst að ég yrði að segja já þegar maður fær tækifæri sem þetta,“ sagði hann.

„Ég sé ekki eftir neinu. Auðvitað vil ég spila meira og nýta þau tækifæri sem ég fæ. En það er margt sem getur skemmt fyrir, eins og meiðsli, sérstaklega þegar maður er hjá stórum félögum.“

Hann vill sanna sig hjá Stjörnunni og veit að gott gengi á Íslandi getur leitt til þess að stór erlend félög fylgist með honum.

„Ég vil fyrst og fremst fá að spila fullt af leikjum. Vonandi tekst okkur að ná árangri, hvort sem er í deildinni eða Evrópukeppninni. Ég hef líka séð að leikmenn sem standa sig vel hér fá tækifæri hjá erlendum liðum. Ég lít ekki á þetta sem skref aftur á bak,“ segir Gunnar en hann samdi við Stjörnuna út tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×