Tónlist

Nýtt lag Diktu: Létu Þjóðverja öskra sig áfram

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Skúli Gestsson segir það hafa verið viðbrigði að vinna með þýska upptökustjóranum, en sveitin er vön að stýra upptökum sjálf.
Skúli Gestsson segir það hafa verið viðbrigði að vinna með þýska upptökustjóranum, en sveitin er vön að stýra upptökum sjálf. Mynd/Florian Trykowski
Hljómsveitin Dikta hefur lokið við tökur og vinnslu á nýrri plötu sem kemur út í september. Þetta verður fyrsta plata sveitarinnar í um fjögur ár og jafnframt fimmta breiðskífa sveitarinnar.

„Platan er alveg tilbúin,“ segir Skúli Gestsson, bassaleikari sveitarinnar, og bætir við: „En við liggjum á henni eins og ormar á gulli.“ Hann segir að ástæða þess að sveitin bíði með útgáfu plötunnar sé að hún komi út samtímis hér á landi og erlendis. „Það er ekki eins hlaupið að því að gefa plötuna út erlendis og við ákváðum því að bíða aðeins með hana.“

Skúli segir að sveitin hafi farið nýjar leiðir á þessari óútkomnu plötu, sem enn á eftir að finna titil á. „Við unnum plötuna með þýska upptökustjóranum Sky Van Hoff. „Við höfum sjálfir séð um upptökustjórn á tveimur síðustu plötunum okkar og gert allt þess háttar á eigin spýtur. Þetta voru því skemmtileg viðbrigði,“ útskýrir hann og bætir við að sveitin hafi farið tvisvar til Þýskalands og dvalið hjá Van Hoff. „Það er fátt sem knýr mann áfram eins og reiður maður sem talar þýsku. Hann tók okkur alveg í gegn, við erum vanir að stjórna okkur sjálfir.”

Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið Sink or Swim.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.