Bíó og sjónvarp

Fimmta American Pie myndin á leiðinni?

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Leikkonan Tara Reid fór með hlutverk Vicky í American Pie-myndunum.
Leikkonan Tara Reid fór með hlutverk Vicky í American Pie-myndunum. Nordicphotos/Getty
Leikkonan Tara Reid, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í American Pie-myndunum, gaf til kynna í viðtali á dögunum að hugsanlega væri ný American Pie-mynd á leiðinni.

Reid sagði í viðtali við útvarpsstöðina KIIS FM að umræður væru í gangi um að gera fimmtu myndina og vel gæti verið að hún yrði tekin upp í Las Vegas.

Myndirnar fjórar hafa þénað yfir 989 milljónir Bandaríkjadala um allan heim en myndin American Reunion, sem kom út árið 2012, átti að vera sú síðasta í seríunni en miðasala gekk vonum framar sem fékk framleiðendur til þess að íhuga gerð annarrar myndar.

Fyrsta American Pie-myndin kom út árið 1999 og segir sögu fjögurra vina sem gera með sér samning þess efnis að allir skuli þeir missa sveindóminn áður en þeir útskrifast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×