Skoðun

Þess vegna er betra að semja

Árni Páll Árnason skrifar
Nú hafa verið sett lög á verkföll BHM og hjúkrunarfræðinga. Það gæti í fljótu bragði virst vera lausn á bráðum vanda sem skapast hefur á sjúkrahúsum landsins, en til lengri tíma litið er ekki um lausn að ræða. Hvers vegna ekki? Lykilorðin eru jafnrétti, jafnræði og virðing fyrir menntun.

Stjórnvöldum ber að minnka kynbundinn launamun. Krafa hjúkrunarfræðinga er að fá sambærileg laun og sambærilegar karlastéttir. Hjúkrunarfræðingar meta að fjögurra ára háskólanám þeirra skili aðeins um 80 prósentum af þeim launum sem hefðbundin karlastétt með hliðstæða menntun aflar. Á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna og 40 ára afmæli kvennafrídagsins ætlar ríkisstjórnin því að festa enn frekar í sessi kynbundinn launamun.

Á stjórnvöldum hvílir sú skylda að semja við opinbera starfsmenn og stuðla að ábyrgum kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem stuðla að stöðugleika. Á rúmu ári hefur ríkisstjórnin hins vegar klúðrað samningum við eigin viðsemjendur og beitt lögum á verkföll fimm sinnum.

Þegar ríkisstjórnin veitti læknum einum bætur fyrir gengisfellingu krónunnar hófst hrunadans sem aldrei gat annað en farið illa. Við getum ekki veitt fámennum hópi forréttindastöðu en látið fjöldann bera tjónið af krónunni. Ef krónan er svona frábær eiga allir að geta búið við afleiðingar gengisfellingar hennar – líka læknar. Ef launastefna ríkisstjórnarinnar er svo handahófskennd að þjóðfélagið þolir ekki að samið sé með sama hætti við hjúkrunarfræðinga og BHM er rétt að ríkisstjórnin segi það bara hreint út. Almenningur situr uppi með afleiðingarnar sem eru fólksflótti úr opinberum störfum og veikara heilbrigðiskerfi.

Stjórnvöld eiga að virða menntun til launa. Við viljum vera skapandi og nútímalegt samfélag og við leggjum áherslu á menntun. Því fylgir að skapa þarf störf við hæfi og greiða laun sem gera menntun þess virði að sækja.

Forgangsverkefni stjórnvalda á að vera uppbygging á öflugri opinberri þjónustu sem býður starfsfólki sambærileg kjör og í nágrannalöndunum og almenningi sömu gæði. Við viljum fjölbreytni í atvinnulífinu og fá hlut í arði af auðlindum landsins til að létta skattbyrði venjulegs fólks. Það var loforð Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar og það verða verkefni nýrrar ríkisstjórnar.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×