Þingmaður ósáttur við viðbrögð banka Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júní 2015 10:30 Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd, er ósáttur við viðbrögð bankanna. fréttablaðið/vilhelm „
Afstaða bankanna einkennist af hroka og virðingarleysi fyrir hagsmunum almennings,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann er ósáttur við viðbrögð bankanna við fyrirspurn hans um gengislán hjá þremur stærstu bönkunum. Hann spurði fjármála- og efnahagsráðherra út í stöðu gengislána hjá Landsbankanum, Íslandsbanka og Arion. Guðlaugur segir að bankarnir hafi dregið að svara fyrirspurnunum sem beint var að ráðherranum, en þremur mánuðum eftir að fyrirspurnin kom fram hafi verið svarað. Guðlaugur segir að Landsbankinn hafi engu svarað efnislega en látið að því liggja að engin mál séu í ágreiningi við viðskiptavini. Guðlaugur segist þó hafa vitneskju um fjölda ágreiningsmála á milli bankans og viðskiptavina hans. Guðlaugur segir að Íslandsbanki hafi ekki svarað og vísað í gögn þar sem svör við þessum upplýsingum sé ekki að finna. „Arion banki svaraði heldur ekki og sagði berum orðum að: ,,Alþingi gegni ekki eftirlitshlutverki gagnvart bankanum.“ Með öðrum orðum, ykkur kemur þetta ekki við!“ segir Guðlaugur. „Það eru stórar fréttir ef Alþingi og almenningur munu ekki fá upplýsingar um bankastarfsemi í framtíðinni. Það skal ítrekað að hér var spurt um mjög stóra hagsmuni fyrir fyrirtæki og heimilin í landinu. Ég mun ekki láta hér við sitja og hef vakið athygli forseta þingsins á þessu svarleysi,“ segir Guðlaugur.
Mest lesið 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Morgunblaðið skammað fyrir að birta óvart lítið merki Neytendur Stytta skammarkrókinn til muna Neytendur Gjaldþrota meðhöndlari Viðskipti innlent Bobbingastaður í bobba Viðskipti erlent Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu Viðskipti innlent E. coli í frönskum osti Neytendur Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Viðskipti innlent Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Viðskipti innlent Fleiri fréttir Efnt til nýrrar loðnuleitar í kapphlaupi við tímann Verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Emblu Medical Gjaldþrota meðhöndlari Auðunn ráðinn viðskiptastjóri Reita Ráðin mannauðs- og gæðastjóri Hörpu „Minnstu loðnuvertíð sögunnar að ljúka“ Hætta við breytta tollflokkun pítsaostsins Tryggja sér lóðir fyrir höfuðstöðvar á rúman milljarð Samkeppniseftirlitið segir samrunann auka samkeppni Landsvirkjun greitt út níutíu milljarða á fjórum árum Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“ Þurfa að taka koffíndrykk á reynslu Stjórnir Samkaupa og Heimkaupa undirrita samrunasamning Örkvóti í loðnu gæti skilað milljarði í útflutningstekjur Afkoma ársins undir væntingum Harma ónákvæma tilkynningu Kauphallar Landsbankinn fór fýluferð í Landsrétt vegna Borgunar Skrifuðu undir viljayfirlýsingu um Coda-stöð í Ölfusi Loðnuvertíð eftir allt saman Heimar kaupa umdeild hús á rúma sex milljarða Play í sögulegri lægð eftir merkingu Kauphallar Bein útsending: Stærðin skiptir máli Rannsaka gögnin sem skera úr um hvort það verði loðnuvertíð Kaupin á TM: „Þetta mun einfaldlega ganga í gegn“ Árstekjur starfsmanna lækkuðu um fimmtung vegna loðnubrests „Tugir kúabúa gætu þurft að hætta“ „Það kæmi mér verulega á óvart ef þessi samruni yrði að veruleika“ Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Bætast í eigendahóp Markarinnar Þriðjungur flugvéla Play leigðar út í næstum þrjú ár Sjá meira