Víkingar ekki unnið í Árbænum í 22 ár Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. júní 2015 08:45 Víkingar hafa ekki sótt gull í greipar Fylkismanna í efstu deild karla í fótbolta í 22 ár. vísir/vilhelm
Fyrsti leikur 10. umferðar Pepsi-deildar karla fer fram í kvöld þegar Fylkir tekur á móti Víkingi á Fylkisvelli. Búast má við fjölmenni á leiknum enda enginn annar leikur í gangi á sama tíma í Pepsi-deildinni. Síðast þegar Fylkismenn stóðu einir að fótboltakvöldi, gegn Breiðabliki í fyrstu umferð deildarinnar, mættu tæplega 2.300 áhorfendur. Gjaldkeri Fylkismanna brosir sínu breiðasta. Árbæingar ættu alveg að búast við þremur stigum hjá sínum mönnum í kvöld miðað við leiki liðanna undanfarinn áratug eða svo. Víkingum virðist ómögulegt að vinna Fylki í efstu deild. Það eru 22 ár síðan Víkingur vann Fylki síðast í efstu deild, en sumarið 1993 hafði Fossvogsliðið betur í Árbænum, 2-1, með mörkum Tomaszar Jaworek og Marteins Guðgeirssonar. Eftir þann sigur töpuðu Víkingar níu leikjum í röð gegn Fylki í efstu deild, en náðu í sitt fyrsta stig síðan í sigrinum 1993 í Árbænum í fyrra þegar Pape Mamadou Faye tryggði Víkingum 1-1 jafntefli. Með sigri í kvöld lyfta Víkingar sér upp fyrir Fylki í deildinni. Fylkir hefur ekki unnið í fjórum deildarleikjum í röð og tapað þremur heimaleikjum í röð.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Enski boltinn „Tími til kominn að taka afstöðu gegn Ísrael“ Sport Fleiri fréttir Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sjá meira