Tónlist

Frumsýning á Vísi: Myndband við lagið Fram með Grúska Babúska

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Hljómsveitin Grúska Babúska hefur verið starfandi frá árinu 2012.
Hljómsveitin Grúska Babúska hefur verið starfandi frá árinu 2012. Mynd/MattEisman
Hljómsveitin Grúska Babúska vakti eftirtekt þegar hún gaf út sína fyrstu plötu árið 2013 á USB-lykli með útlit babúsku.

Hljómsveitin var stofnuð árið 2012 og segir Harpa Fönn Sigurjónsdóttir, einn meðlima, þær koma úr ólíkum áttum en allar hafa átt sameiginlegan draum um að stofna hljómsveit og vinna þær nú að því að gefa út nýtt efni.

Lögin sem gefin verða út í ár eru fimm talsins og verða þau öll gefin út sem smáskífur ásamt myndbandsverkum eftir ólíka leikstjóra sem allir eiga það sameiginlegt að vera kvenkyns.

Hér má sjá skáskot úr myndbandinu sem er eftir Björk Viggósdóttur.Mynd/BjörkViggósdóttir
„Það var eiginlega hálf óvart, fyrsta myndbandið sem við gerðum unnum við með konu og líka númer tvö og það gekk svo vel,“ segir hún glöð í bragði og heldur áfram:

„Þegar maður fer að leita að leikstjóra á Íslandi detta manni fyrst í hug karlmenn. Konurnar eru kannski ekki með eins tækifæri þar og við fórum að skoða hvaða konur væru að leikstýra tónlistarmyndböndum og það var bara heill hellingur þegar maður fór að skoða og það var rosalega gaman.“

Meðlimir hljómsveitarinnar eru fimm talsins, þær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir hljómborðsleikari, Arndís Anna Kristínar- og Gunnarsdóttir flautuleikari, Dísa Hreiðarsdóttir trommuleikari, Guðrún Birna La Sage de Fontenay gítarleikari og Björk Viggósdóttir, synþa-leikari.

Myndbandinu við lagið Fram er leikstýrt af Björk Viggósdóttur sem í kringum samvinnuna varð meðlimur í hljómsveitinni.


Tengdar fréttir

Krúttleg og "krípí“

Hljómsveitin Grúska Babúska gefur út sína fyrstu plötu í apríl. Platan er heldur óvenjuleg því hún kemur út í formi usb-lykils sem lítur út eins og babúska.

Kaflaskipt Babúsku-frumraun

Á köflum gengur blandan af þjóðlaga- og rafpoppi mjög vel upp hjá Grúsku Babúsku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×