Lífið

Járnmaðurinn utandyra í fyrsta sinn á Íslandi

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Hér má sjá Viðar Þorsteinsson keppa í Járnmanninum fyrir ári.
Hér má sjá Viðar Þorsteinsson keppa í Járnmanninum fyrir ári. mynd/aðsend
Járnmaðurinn verður haldin í fyrsta skiptið utandyra í dag. Fyrirmyndin er Ironman-keppnin og er keppt í þríþraut. Keppendur byrja á að synda 1,9 kílómetra í Meðalfellsvatni. Eftir það hjóla þeir 90 kílómetra í Hvalfirðinum og enda á 21 kílómetra hlaupi í Kjósinni. Fjörutíu manns hafa boðað komu sína og ætla að taka þátt ásamt tveimur liðum sem skipta þrautunum á milli sín.

Pétur Einarsson er einn af aðstandendum keppninnar en hann ætlar sömuleiðis að taka þátt. Hann hefur nokkrum sinnum tekið þátt í Ironman erlendis en þar eru allar vegalengdirnar tvöfalt lengri en í Járnmanninum. „Þetta verður nokkurs konar upphitun fyrir mig. Ég hef nokkrum sinnum keppt úti í stóru keppnunum. Svo erum við líka með einn frægasta Ironman-sigurvegarann hér á Íslandi og hann ætlar að taka þátt í dag,“ segir Pétur.

Chris McCormack er margfaldur meistari í Ironman og sigraði í heimsmeistarakeppninni árið 2010. Hann er eitt þekktasta nafnið í þessari grein í dag. „Það er magnað að labba með honum niður Laugaveginn, það er mikið af útlendingum sem kannast við hann. Hann er með 180 þúsund fylgjendur á Twitter og gaf út metsölubók árið 2011.“

Járnmaðurinn hefst klukkan tíu í dag við Meðalfellsvatn og er búist við að þeir fyrstu komi í mark eftir rúma fjóra tíma og þeir síðustu skili sér eftir sjö klukkutíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×