Lífið

Sólskinsdagur í Sólheimum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Í markaðstjaldinu verður grænmeti frá Sólheimum til sölu. Reynir Pétur Steinunnarson göngugarpur, Valgeir F. Backman og Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir skátar aðstoða Hörpu Rós Jónsdóttur við að bera lífræna íþróttanammið úr búðinni út í tjald.
Í markaðstjaldinu verður grænmeti frá Sólheimum til sölu. Reynir Pétur Steinunnarson göngugarpur, Valgeir F. Backman og Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir skátar aðstoða Hörpu Rós Jónsdóttur við að bera lífræna íþróttanammið úr búðinni út í tjald.
Það verður líf og fjör á Sólheimum í dag þar sem haldið verður upp á Lífræna daginn í Menningarveislu Sólheima. Þessi hátíð er nú haldin í tíunda sinn en fleiri stórafmælum verður fagnað þennan dag á Sólheimum.

„Það hittir svo á að í ár eru einnig þrjátíu ár frá Íslandsgöngu Reynis Péturs og Skátafélag Sólheima á einnig þrjátíu ára afmæli. Það er því nóg af tilefnum til að fagna,“ segir Valgeir F. Bachman, skipuleggjandi Menningarveislunnar, en þegar blaðamaður heyrir í honum hljóðið er undirbúningur á fullu. Verið er að reisa markaðstjaldið þar sem framleiðslan sem fer fram á Sólheimum verður til sölu með góðum afslætti.

Að auki verða tvennir tónleikar í Sólheimakirkju, útileikir og spil fyrir alla fjölskylduna, Háskólalestin mætir með fræðandi skemmtun og sýningin um gönguferð Reynis Péturs verður opin. Skátafélagið vígir nýtt skátaheimili á afmælinu og fagnar með varðeldi þar sem hægt verður að baka brauð á priki og skátasöngvar sungnir.

„Það myndast alltaf gífurlega góð stemning á þessum degi og hefur í raun verið góð stemning hjá okkur í allt sumar. Það hefur aldrei verið jafn mikið að gera hjá okkur. Enda er alltaf sól í Sólheimum þótt það rigni aðeins,“ segir Valgeir.



Lífræni dagurinn á Menningarveislu Sólheima 

12:00-18:00         Kaffihúsið Græna kannan, verslunin Vala og markaðstjald

13:00-17:00         Leikir fyrir börn á öllum aldri á túninu

14:00-17:00         Háskólalestinn í Íþróttaleikhúsinu/ túni.

14:00-15:00         Magnea Tómasdóttir og Inga Björk Ingadóttir  með tónleika í Sólheimakirkju

15:00-17:00         Vorsabær II kemur með hesta, teymt undir.

15:30-17:00         Söngur, gleði og varðeldur í Tröllagarði

                            Skátadagurinn, stofnendur segja sögu og vígja Skátaheimili Sólheima

16:00-17:30         Lífrænt grænmetiströllaseyði af hlóðum Tröllagarðs

16:00-17:00         Nikolaus Kattner trúbador treður upp við Grænu könnunna






Fleiri fréttir

Sjá meira


×