Bíó og sjónvarp

Jones orðuð við Star Wars

Felicity Jones hefur verið tilnefnd til Óskarsins fyrir hlutverk sitt í The Theory of Everything.
Felicity Jones hefur verið tilnefnd til Óskarsins fyrir hlutverk sitt í The Theory of Everything. Vísir/Getty
Felicity Jones er í viðræðum um að leika í næstu Star Wars-mynd, The Force Awakens, sem er væntanleg í bíó í desember á næsta ári.

Jones var nýlega tilnefnd til Óskarsins fyrir hlutverk sitt í The Theory of Everything.

Fyrir viku bárust fregnir um að áheyrnarprufur vegna myndarinnar væru í fullum gangi og svo virðist sem Jones hafi gengið allt í haginn þar. Áður höfðu Rooney Mara og Tatiana Maslany verið orðaðar við hlutverk í myndinni.

Tökur eiga að hefjast síðar á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.