Bíó og sjónvarp

Tarzan kemur Jane til bjargar

Samúel Karl Ólason skrifar
Jane og Tarzan.
Jane og Tarzan. Mynd/Warner Bros
Hver kannast ekki við að hafa lesið sögur um Tarzan á sínum yngri árum, og jafnvel enn þann dag í dag? Auk teiknimyndasaga og auðvitað bóka, hafa verið gerðar fjölmargar kvikmyndir og teiknimyndir um konung frumskógarins og nú er komið að nýrri.

Warner Bros birtu í dag stiklu úr nýjustu myndinni sem ber heitið The Legend of TarzanAlexander Skarsgård er í aðalhlutverki auk þeirra Margot Robbie, Christoph Waltz, sem virðist leika vonda karlinn, og Samuel L. Jackson.

Kvikmyndin verður frumsýnd þann 1. júlí á næsta ári, en stikluna má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×