Lífið

Nemandi tekinn í bólinu við að horfa á klám í tíma - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það verður erfitt að mæta aftur í tíma eftir þetta.
Það verður erfitt að mæta aftur í tíma eftir þetta. vísir
Ótrúlegt atvik átti sér stað inni í skólastofu í háskóla í Bandaríkjunum á dögunum en einn áhugalaus nemandi hafði meiri áhuga á því að horfa á klám í miðjum tíma en að hlusta á kennarann.

Svo óheppilega vildi til að hann gleymdi að stinga heyrnatólunum í samband við tölvuna sína og því heyrðust gríðarlegar stunur um alla stofu.

Drengurinn var nokkuð lengi að átta sig á því að allur bekkurinn var í hláturskasti en um leið og hann áttaði sig hljóp hann út úr stofunni.

Til að bæta gráu ofan á svart náðist þetta allt á myndband sem hefur nú verið sett á Youtube. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×