Sport

Rivers verður betri með hverju barni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rivers í leik með Chargers.
Rivers í leik með Chargers. vísir/getty
Philip Rivers, leikstjórnandi NFL-liðsins San Diego Chargers, er að eiga sitt besta tímabil í deildinni og álagið heima fyrir virðist hreinlega gera hann að betri leikmanni.

Eiginkona hans, Tiffany, fæddi í fær áttunda barn þeirra hjóna. Það var stúlka sem hefur verið nefnd Clare. Mikið barnalán hjá þeim hjónum.

Þau hafa verið kærustupar síðan í 7. bekk og giftust er þau voru á fyrsta ári í háskóla.

Stuðningsmenn Chargers fagna barninu og hafa gert gaman að því að Rivers verði hreinlega betri leikmaður með hverju barni og þeir vonast því eftir að Rivers eignist fleiri börn.

Rivers er einn af kórdrengjunum í NFL-deildinni. Verið með sömu konunni allt sitt líf og hefur aldrei komist í fréttirnar fyrir eitthvað neikvætt.

Þau hjónin hafa síðan verið dugleg í góðgerðarstörfunum og hafa meðal annars verið dugleg við hjálpa heimilislausum börnum við að finna heimili.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×