Lífið

Smáhundurinn Panchino hverfur í snjónum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hundurinn Panchino hverfur í snjónum.
Hundurinn Panchino hverfur í snjónum.
Myndband af smáhundinum Panchino sem ætlar að fara út að leika sér með eiganda sínum og hverfur í snjóskafli hefur gengið um netheima síðustu daga og vikur.

Myndbandið hefur verið birt bæði á Youtube og á Facebook. Á Youtube-síðunni kemur fram að engin dýr hafi slasast við gerð myndbandsins. 

Eigandinn ætlar að hjálpa chihuahua-hundinum að komast um í snjónum, en það vill ekki betur til en svo að Panchino hverfur alveg í skaflinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×