Tónlist

Ný plata komin út með Diktu: Útgáfutónleikar í Hörpunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dikta með tónleika á miðvikudaginn.
Dikta með tónleika á miðvikudaginn.
Platan Easy Street með Diktu kemur út í dag og verða útgáfutónleikar í Hörpu af því tilefni.

Dikta hefur notið mikilla vinsælda frá því hljómsveitin var stofnuð árið 1999, meðal annars var hún kjörin Vinsælasti flytjandinn á Íslensku tónlistarverðlaununum tvö ár í röð.

Í dag kemur út ný plata frá Diktu sem ber titilinn Easy Street og er svo sannarlega til vitnis um að hljómsveitin hefur hvergi slegið slöku við. Platan var unnin á tveggja ára tímabili hérlendis og í Þýskalandi undir stjórn þýska upptökustjórans Sky van Hoff.

Lögin Sink or Swim og We'll Meet Again hafa þegar heyrst af plötunni og hafa þau fengið gríðargóðar viðtökur á öldum ljósvakans og ríkir því mikil eftirvænting hjá aðdáendum eftir plötunni, sem verður einnig fáanleg á vínil, síðar í haust.

Af þessu tilefni blæs Dikta til útgáfutónleika í Norðurljósum Hörpu þann 9. september þar sem öllu verður til tjaldað svo tónleikarnir megi verða sem glæsilegastir. Hægt að nálgast miða á Tix.is.s






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.