Dagur hét því á Twitter fyrr í kvöld að ef Måns Zelmerlöw stæði uppi sem sigurvegari í Eurovision myndi hann mæta í vinnuna í leðurbuxum. Það fór á endanum þannig að Zelmerlöw sigraði nokkuð örugglega.
En hvaða stærð af leðurbuxum er borgarstjórinn að leita? „Ég nota um það bil 33/33 eða 50, það er eftir því hvaða,“ svarar Dagur.
Ef einhver vill lána Degi leðurbuxur í þessari stærð er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is og við komum skilaboðunum áfram.
Auglýsi eftir leðurbuxum í stærð 33/33 eða 50. Til notkunar á þriðjudag. #12stig #deilihagkerfið #loforðeruloforð
— Dagur B. Eggertsson (@Dagurb) May 23, 2015