Hafa ekki óskað eftir formlegu liðsinni forsetans Þorbjörn Þórðarson skrifar 17. ágúst 2015 20:00
Ríkisstjórnin hefur ekki óskað eftir aðstoð forseta Íslands vegna viðskiptabanns Rússa. Sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum segir að það yrði litið alvarlegum augum af samstarfsaðilum Íslands í Atlantshafsbandalaginu ef Íslendingar myndu semja einhliða við Rússa. Þau skilaboð sem íslensk stjórnvöld hafa fengið frá Moskvu vegna viðskiptabannsins eru nær öll á sama veg, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Rússnesk stjórnvöld eigi erfitt með að sjá í gegnum fingur sér varðandi innflutning á íslenskum matvælum til Rússlands nema Ísland falli frá stuðningi við þvingunaraðgerðir ESB ríkja og vesturveldanna gagnvart Rússum. Sem kunnugt er bættist Ísland á lista yfir ríki sem sæta viðskiptabanni hjá Rússum í síðustu viku en auk Íslands bættust við Albanía, Svartfjallaland, Liechtenstein og Úkraína. Þessi ríki styðja öll viðskiptaþvinganir ESB og Bandaríkjanna gagnvart Rússum.Jón Ormur HalldórssonTelur þú raunhæft í ljósi þess að Ísland er stofnaðili Atlantshafsbandalagsins fyrir íslensk stjórnvöld að fara í einhverja samninga við stjórnvöld í Moskvu til þess að aflétta þessu banni? „Íslendingar reyna alltaf, eins og allir gera, að huga að sínum hagsmunum og finna leiðir til þess gæta þeirra sem allra best. Það væri hins vegar ákaflega illa séð ef Íslendingar færu að gera einhverja sérsamninga við Rússland og það yrði mjög eftir því tekið. Ýmis konar stjórnmálahreyfingar í Evrópu myndu bregðast við því með þeim hætti að benda á að þetta og gera slíkt hið sama. Það er nákvæmlega þetta sem Pútín myndi gjarnan vilja sjá, að veikja þessa samstöðu sem þó tókst að ná eftir innrás Rússa í Úkraínu,“ segir Jón Ormur Halldórsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum.Baldur Þórhallsson.„Það er alveg sjálfsagt að íslensk stjórnvöld reyni að fá þau rússnesku að hætta við þessar viðskiptaþvinganir og halda talsambandi við Moskvu. Á sama tíma er hins vegar mjög mikilvægt fyrir Ísland, sem er mjög lítið ríki, að bindast nánum trúnaðarböndum við önnur lýðræðisríki í Vestur-Evrópu og taka höndum saman með þeim og reyna í sameiningu að eiga við rússneska björninn. Það verður að hafa í huga að aðgerðir Rússlands hafa leitt til þeirrar stöðu að friði í Evrópu hefur ekki verið stefnt í jafn mikla hættu frá síðari heimsstyrjöld. Lýðræðisríkin í Evrópu gátu ekki setið aðgerðalaus hjá. (...) Sérstaklega held ég að þetta skipti máli vegna þess hversu fámenn við erum og þeirrar staðreyndar að við getum hvorki varið landið né landhelgina,“ segir Baldur Þórhallsson en hann vísar þar til veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu. Líklega enginn Íslendingur þekkir jafn vel til stjórnvalda í Moskvu og Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Að sögn aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra hefur engin formleg ósk farið til forsetans um liðsinni í málinu enda er ekki hefð fyrir slíku. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Ólafur Ragnar áttu þó fund á fimmtudag á Bessastöðum og var þetta mál rætt þar. Fréttastofan óskaði eftir viðtali við forsetann vegna málsins og beindi til hans eftirfarandi spurningum: a) Hefur verið leitað til þín vegna málsins?b) Hefur þú tök á að aðstoða við að verja íslenska hagsmuni vegna viðskiptabannsins?c) Treystir þú þér til að meta, sem fyrrverandi fræðimaður í stjórnmálafræði og sérfræðingur um geopólitík, hvað það myndi þýða ef íslensk stjórnvöld færu þess á leit við Rússa að þeir endurskoðuðu bann á íslensk matvæli og eftir atvikum myndu draga til baka stuðning við viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum í ljósi þess hversu mikið tjón gagnaðgerðir Rússa hafa fyrir íslensk fyrirtæki?d) Er ekki fýsilegt fyrir íslensk stjórnvöld að semja beint við Rússa um tilslakanir eða eftir atvikum draga stuðning við viðskiptaþvinganir gagnvart þeim til baka, með vitneskju ESB-ríkjanna, í ljósi þess hversu sérstaks eðlis (sui generis) málið er fyrir Ísland? Eins og fjármála- og efnahagsráðherra benti á í fréttum í gær snýst þetta aðallega um frystingu eigna Rússa og viðskiptabann með vopn. Hvorugt snertir Ísland á nokkurn hátt. Þau svör fengust frá skrifstofu forsetans að hann myndi ekki veita viðtöl um málið að svö stöddu.
Tengdar fréttir Samráðsvettvangur vegna viðskiptabanns Rússa tekur til starfa Forsætisráðuneytið, viðkomandi ráðuneyti og hagsmunaaðilar funda vegna viðskiptabanns Rússa. 17. ágúst 2015 16:46 SFS: Slæm tíðindi fyrir þjóðina alla Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hefur áhyggjur af stöðu íslenskra sjávarútvegisfyrirtækja í kjölfar viðskiptabanns Rússa. 13. ágúst 2015 11:41 Vill að Ísland hætti að styðja viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi „Ég hef áhyggjur af því að við séum að blanda okkur í þessi mál gagnvart rússum vegna þeirra hagsmuna sem við höfum á fiskmörkuðum fyrst og fremst,“ segir Ásmundur Friðriksson þingmaður. 1. ágúst 2015 19:04 Rússar setja viðskiptabann á Íslendinga Rússland hefur ákveðið að setja viðskiptabann á matvæli frá fimm ríkjum til viðbótar við það bann sem þegar hafði verið sett á ríki Evrópusambandsins. Löndin eru Albanía, Svartfjallaland Liechtenstein og Úkraína. 13. ágúst 2015 11:12 Vilja nýta góð samskipti Ólafs Ragnars og Putin Stjórn Landssambands smábátaeigenda lýsir yfir miklum áhyggjum vegna ákvörðunar Rússa að setja viðskiptabann á vörur frá Íslandi. 13. ágúst 2015 23:22 HB Grandi sér fram á tekjutap Á síðasta ári námu tekjur félagsins vegna viðskipta við Rússland um 36 milljónum evra. 13. ágúst 2015 13:49 Skoða hvort ESB sé tilbúið að lækka tolla á fiskafurðir Forsætisráðherra segir aðgerðir Rússa bitna tuttugu sinnum meira á Íslandi en Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra hefur þegar haft samband við ESB vegna hugsanlegra tollalækkana á sjávarafurðum. 15. ágúst 2015 07:00 Mest lesið Eins og að vera fangi í eigin líkama Fréttir „Faðir minn ætti að deyja í fangelsi“ Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Heimurinn er að breytast, hvað sem er getur gerst“ Erlent Byssumaður í Pizzagate-málinu skotinn til bana Erlent Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Innlent „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ Erlent Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Innlent Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Innlent Þórdís vill ekki fresta landsfundi Innlent Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn ræða seinkun en Framsókn skoðar að flýta Strand í viðræðum og jákvæður þrýstingur frá Trump Þórdís vill ekki fresta landsfundi Viðræður í kjaradeilu kennara sigldu í strand Húsköttur á Seltjarnarnesi með fuglaflensu Árið í fyrra það heitasta frá upphafi mælinga 85 ára og situr við alla daga og tálgar fugla úr íslensku birki Gert að loka annarri flugbraut Reykjavíkurflugvallar Breytingar á Reykjavíkurflugvelli og asahláka Nauðgaði andlega fatlaðri konu ítrekað og lét son hennar horfa á Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Ekkert verður af kaupunum á Krafti „Ef ég fæ þig ekki fær þig enginn því sver ég eið“ Taka við rekstri Sæborgar á Skagaströnd Endurvekja Á allra vörum til að byggja nýtt Kvennaathvarf Fjölga leikskólaplássum um allt að 300 í Reykjavík Framlengir stuðningskerfi um ár en ræðst í endurskoðun Gular viðvaranir vegna hvassviðris og rigningar Fíkniefnanotkun talin meginorsök banaslyss í Lækjargötu Leikskólarýmum fjölgað og brýnt að skýra áfengislöggjöfina Stækka leikskólann Múlaborg við Ármúla Fimm fluttir á sjúkrahús eftir rútuslysið Hættir sem formaður Hagsmunasamtaka heimilanna Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest Framsóknarmenn í Reykjavík vilja flýta flokksþingi Laxalús í sjókvíum smitist greiðlega í villta laxa Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Framkvæmdir við stóran áfanga Borgarlínu á næsta leiti „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Sjá meira
Samráðsvettvangur vegna viðskiptabanns Rússa tekur til starfa Forsætisráðuneytið, viðkomandi ráðuneyti og hagsmunaaðilar funda vegna viðskiptabanns Rússa. 17. ágúst 2015 16:46
SFS: Slæm tíðindi fyrir þjóðina alla Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi hefur áhyggjur af stöðu íslenskra sjávarútvegisfyrirtækja í kjölfar viðskiptabanns Rússa. 13. ágúst 2015 11:41
Vill að Ísland hætti að styðja viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi „Ég hef áhyggjur af því að við séum að blanda okkur í þessi mál gagnvart rússum vegna þeirra hagsmuna sem við höfum á fiskmörkuðum fyrst og fremst,“ segir Ásmundur Friðriksson þingmaður. 1. ágúst 2015 19:04
Rússar setja viðskiptabann á Íslendinga Rússland hefur ákveðið að setja viðskiptabann á matvæli frá fimm ríkjum til viðbótar við það bann sem þegar hafði verið sett á ríki Evrópusambandsins. Löndin eru Albanía, Svartfjallaland Liechtenstein og Úkraína. 13. ágúst 2015 11:12
Vilja nýta góð samskipti Ólafs Ragnars og Putin Stjórn Landssambands smábátaeigenda lýsir yfir miklum áhyggjum vegna ákvörðunar Rússa að setja viðskiptabann á vörur frá Íslandi. 13. ágúst 2015 23:22
HB Grandi sér fram á tekjutap Á síðasta ári námu tekjur félagsins vegna viðskipta við Rússland um 36 milljónum evra. 13. ágúst 2015 13:49
Skoða hvort ESB sé tilbúið að lækka tolla á fiskafurðir Forsætisráðherra segir aðgerðir Rússa bitna tuttugu sinnum meira á Íslandi en Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra hefur þegar haft samband við ESB vegna hugsanlegra tollalækkana á sjávarafurðum. 15. ágúst 2015 07:00