Lífið

Miðasalan á Josh Blue hefst í fyrramálið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Josh Blue er fatlaður og er þekktur fyrir að gera mikið grín af sjálfum sér.
Josh Blue er fatlaður og er þekktur fyrir að gera mikið grín af sjálfum sér. vísir/getty
Grínistinn Josh Blue skemmtir hér á landi föstudagskvöldið en miðasalan hefst í fyrramálið klukkan tíu.

Hugleikur Dagsson og Jóhannes Ingi hita upp fyrir Josh en Jóhannes vann Fyndnasti Nemi HÍ uppistands-keppnina fyrr á árinu.

Josh Blue sigraði Last Comic Standing á NBC árið 2006 og hefur síðan þá ferðast um heiminn með uppistand sitt.

Josh Blue er fatlaður grínisti og gerir óspart grín að fötlun sinni, viðbrögðum samfélagsins við fötlun sinni og annarra og brýtur þannig niður staðalmyndir um fatlað fólk og salurinn öskrar af hlátri með honum. Grínsýning hans er í stöðugri þróun og engar tvær sýningar eru eins hjá uppistandaranum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×