Lífið

Madonna 57 ára: Sjáðu hvernig hún hefur breyst í gegnum árin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Madonna lítur ótrúlega vel út.
Madonna lítur ótrúlega vel út. vísir/getty
Poppdívan Madonna varð 57 ára í gær og ber hún aldurinn heldur betur vel. Tímaritið Now hefur birt skemmtilegt myndband á vefsíðu sinni og sýnir það hvernig hún hefur breyst í gegnum árin.

Madonna hefur verið einn allra vinsælasti listamaðurinn í heiminum undanfarna áratugi og gefið út smelli á borð við Like a Virgin, Into the Groove, Papa Don't Preach, Like a Prayer, Vogue, Frozen, Music, Hung Up, og 4 Minutes.

Hér að má sjá myndbandið skemmtilega. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×