Lífið

Fox og Green að skilja

Atli Ísleifsson skrifar
Fox og Green eiga saman tvo syni.
Fox og Green eiga saman tvo syni. Vísir/AFP
Bandarísku leikararnir Megan Fox og Brian Austin Green hafa ákveðið að skilja eftir fimm ára hjónaband og ellefu ára samband.

Heimildarmaður People segir að þau munu ætíð elska hvort annað og eru bæði trú börnun sínum. „Allt getur gerst í framtíðinni, en nú hafa þau ákveðið að best sé að skilja.“

Í fréttinni segir að þau Fox og Green hafi lifað í sundur í nokkurn tíma og ekki sést saman opinberlega í marga mánuði.

Fox og Green eiga saman synina Noah Shannon, tveggja og hálfs árs, og Bidhi Ransom, átján mánaða. Fyrir átti Green soninn Kassius, þrettán ára.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×