Lífið

Freeman mætti til starfa tveimur dögum eftir að barnabarn hans var myrt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér sést Freeman á tökustað í New York í gær, aðeins tveimur dögum eftir voðaverkin.
Hér sést Freeman á tökustað í New York í gær, aðeins tveimur dögum eftir voðaverkin. vísir/getty
Bandaríski leikarinn var mættur aftur til starfa aðeins tveimur dögum eftir að barnabarn hans var stungin til bana á götu úti í New York.

Konan heitir E´Dena Hines og var stungin margsinni af kærasta sínum en samkvæmt vitnum ætlaði hann sér að særa úr henni illa anda.

Freeman vinnur nú að myndinni Going in Style, sem er endurgerð af mynd með sama titli sem kom út árið 1979. Alan Arkin og Sir Michael Caine fara einnig með hlutverk í myndinni.

Lamar Davenport, kærasti E´Dena Hines, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir morð. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×