Lífið

Forsetaframbjóðandi Repúblikana kastaði bolta í andlitið á ungum dreng

Stefán Árni Pálsson skrifar
Marco Rubio sló ekki beint í gegn.
Marco Rubio sló ekki beint í gegn.
Marco Rubio er einn af kandídötum Repúblikana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjum en hann lenti í heldur vandræðalegu atviki á dögunum.

Þessi þingmaður frá Flórída var staddur í Iowa þegar hann ákvað að kasta amerískum fótbolta til nokkurra krakka. Það fór ekki betur en svo að boltinn hafnaði beint í andlitinu á ungum dreng.

Vissulega náðist þetta á myndband sem sjá má hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×