Það mest spennandi í stöðunni Kristinn Páll Teitsson skrifar 19. ágúst 2015 06:00 Hörður Axel í landsleik gegn Hollandi á dögunum. vísir/ernir „
Það er svolítið síðan ég skrifaði undir hjá þeim svo ég hef ekkert verið að stressa mig á mínum málum, þetta var bara loksins gert opinbert í gær. Ég var alltaf með samninginn í höndunum,“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, í samtali við Fréttablaðið í gær. Tilkynnt var að Hörður myndi leika með Trikala BC í grísku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en hann kemur til liðsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans hjá Mitteldeutscher rann út. „Mér stóð einnig til boða samningur hjá Mitteldeutscher svo þetta var nokkuð þægilegt sumar, ég hafði ekki miklar áhyggjur af samningsmálunum.“Þjálfarinn hefur trú á mér Gríska deildin í körfuknattleik er afar sterk en þar standa upp úr tvö af sterkustu félagsliðum Evrópu, Panathinaikos og Olympiakos. „Ég hefði alveg íhugað að vera áfram í Þýskalandi hefði tilboð komið sem væri spennandi en þetta var það sem mér fannst mest spennandi í stöðunni og stökk á það. Það eru auðvitað tvö lið sem hafa gríðarlega yfirburði í deildinni og það er ekki raunhæft að berjast um titla en við verðum að berjast þar fyrir neðan.“ Þjálfari liðsins hefur verið að hafa samband við Hörð undanfarin ár þegar hann þjálfaði í Þýskalandi.„Þjálfarinn var að þjálfa í Þýskalandi og hann hefur verið að ræða við mig síðustu ár um að koma til sín. Það er gott að vita af því að þjálfarinn hefur trú á manni og veit út á hvað ég geng inn á vellinum. Hann veit hvernig ég vil spila og mun reyna að nota mig þannig. Ég er fyrsti leikmaðurinn sem félagið fær til liðs við sig sem segir mér að ég verði í stóru hlutverki.“ Hörður viðurkenndi að þetta væri stórt stökk í djúpu laugina hvað varðar tungumál en hann sagðist ekki viss hvort hann og kærastan myndu leggja í það að læra gríska tungumálið. „Konan mín var búin að ákveða að læra tungumálið á næsta stað sem við færum en ég er ekki viss hvað hún segir í dag. Þetta er allt annað tungumál og stafróf en við þekkjum,“ sagði Hörður léttur en hann sagði flesta á körfuboltavellinum tala ensku. „Ég slapp með það í Þýskalandi að tala bara ensku inni á vellinum, það eru svo margir Kanar þar að það er töluð enska inn á vellinum. Jafnvel þegar tveir þýskir leikmenn voru að tala sín á milli er það oft á ensku.“Hörður Axel er lykilmaður í íslenska landsliðinu sem er á leið á EuroBasket í fyrsta sinn.vísir/ernirHef trú á þessu verkefni Hörður viðurkenndi að efnahagsástandið í Grikklandi hefði komið upp í huga sinn þegar hann ákvað hvert næsta skref á ferlinum yrði. „Auðvitað var maður örlítið varkár hvað varðar lið í Grikklandi út af ástandinu úti. Það voru fleiri grísk lið sem höfðu samband og ég var ekki opinn fyrir þessu í byrjun en þeim tókst að sannfæra mig. Umboðsmaðurinn minn sem er grískur sagðist ekki ætla að tala við lið sem væru ekki alveg pottþétt,“ sagði Hörður sem sagðist hafa farið varlega í viðræðurnar. „Maður verður að treysta fólki. Maður hefur brennt sig áður á því en ég held að þetta muni allt standast í þetta skiptið. Ég passaði mig á því að hafa klásúlur í samningnum um að ef allt færi á versta veg gæti ég farið frá félaginu. Það veitir mér aukið öryggi.“Einbeiti mér að Eurobasket Hörður er þessa dagana á fullu í undirbúningi með íslenska landsliðinu fyrir Evrópumótið í körfuknattleik, Eurobasket 2015, sem fer fram í Berlín í september. Hörður sagði að samningaviðræður sínar hefðu ekki truflað undirbúninginn. „Við erum allir mjög einbeittir á þetta landsliðsverkefni, ég kláraði að skrifa undir og setti það strax til hliðar til þess að einbeita mér að landsliðinu. Ég var ekkert að tilkynna þetta fyrr en liðið tilkynnti þetta í morgun. Þetta verður í fyrsta sinn sem við getum keppt á móti á borð við þetta og hver veit hvenær þetta tækifæri kemur aftur,“ sagði Hörður sem sagði íslensku leikmennina ætla að njóta stundarinnar en á sama tíma væru þeir mættir til þess að keppa. „Maður verður að njóta þess til hins ýtrasta þegar við komumst loksins inn en við erum ekki að fara til þess að láta valta yfir okkur. Við förum og munum berjast fyrir öllum boltum í Berlín.“ Íslenska liðið tekur þátt í undirbúningsmóti í Eistlandi á næstu dögum.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Íslenska íþróttafólkið fékk gefins síma og smokka Sport Þórir fékk gleðifréttir í gær Handbolti „Ég varð fyrir vonbrigðum með Gylfa“ Íslenski boltinn Fagnaði sigri á Ólympíuleikunum komin sjö mánuði á leið Sport Skilur ekkert í skipuleggjendum: „Alveg út í hött“ Sport Áfrýja stigafrádrættinum en ekki leikbanni þjálfarans fyrrverandi Fótbolti Gylfi ekki með Val til Skotlands Fótbolti Anton Sveinn komst áfram í undanúrslit Sport Anton Sveinn vitnaði í Egil Skalla-Grímsson: „Höggva mann ok annan“ Sport Logi snýr aftur í Njarðvíkurliðið: „Ofboðslega spennandi tími” Körfubolti Fleiri fréttir Fyrrum leikmaður Indiana State og DePaul samdi við Hött Logi snýr aftur í Njarðvíkurliðið: „Ofboðslega spennandi tími” Nimrod með KR í Bónusdeildinni Íslandsmeistararnir fá til sín fyrrum WNBA leikmann Frakkar enn fúlir út í Embiid og púuðu linnulaust á hann Töpuðu með 26 stigum þær níu mínútur sem Jokic hvíldi Bandaríkjamenn ekki í vandræðum með Jókerinn og félaga Sjálfsöruggur Ant hefur trú á sér sama hver íþróttin er Björtu stjörnurnar frá Suður-Súdan komnar á blað á Ólympíuleikunum 34 stig frá Antetokounmpo dugðu ekki til Öruggur fyrsti sigur íslensku strákanna „Sorgardagur þegar eigendurnir velja peningana fram yfir aðdáendurna“ Westbrook til liðs við Nuggets Ólafur skrifar undir nýjan samning: „Með verkefni sem við þurfum að klára“ Oddur Rúnar aftur í Grindavík Síðasta púslið hjá Keflvíkingum fundið Bless Barkley, Shaq og félagar: TNT stöðin missir NBA WNBA sölutölur fimmfaldast eftir komu Caitlin Clark og Angel Reese Gætu flutt Philadelphia 76ers til New Jersey „Hef aldrei komið til Íslands en ég veit að það er fallegt og kalt“ Óvænt tíðindi að austan: „Mikil vonbrigði“ Daníel rétt missti af stoðsendingatitlinum á EM Fer til Dallas á nýjan leik „Væri ekki bara einfaldast fyrir mig að skipta um þjóðerni“ „Við lögðum mikla á áherslu á að fá Dwayne aftur til okkar” Caitlin Clark heilsaði upp á dætur Kobe Bryant á stjörnuleiknum Russell Westbrook frjáls ferða sinna á ný Strákarnir unnu Tyrki og héldu sér í A-deild LeBron kom í veg fyrir ein óvæntustu úrslit körfuboltasögunnar Strákarnir sprungu út og tryggðu sér úrslitaleik um sæti í A-deild Sjá meira