Lögregla réðst til atlögu gegn báðum gíslatökustöðunum í og í kringum París um klukkan 16. Staðfest er að gíslatökumaðurinn í París hafi fallið í aðgerðum lögreglu auk minnst fjögurra gísla. AFP greinir frá því að bræðurnir Said og Cherif Kouachi séu báðir látnir og að takist hafi að bjarga gíslinum í prentsmiðjunni í Dammartin.
AFP greinir frá því að bræðurnir hafi haldið út úr prentsmiðjunni og byrjað að skjóta í átt að lögreglu. Hafi þeir verið skotnir til bana. Skothljóð og fjórar eða fimm sprengingar heyrðust í útsendingum frá staðnum.
Skaut lögreglukonu í gær
Tveir lögreglumenn særðust í aðgerðum við verslunina en fjórir gíslar létust í umsátrinu, sem var í austurhluta Parísar. Staðfest er að maðurinn sé sá hinn sami og drap lögreglukonuna Clarissa Jean-Philippe, 26 ára, í suðurhluta Parísar í gær.
Franskir fjölmiðlar greina frá því að gíslatökumaðurinn hafi krafist þess að Kouachi-bræðrunum verði sleppt en þeir hafa verið umkringdir af lögreglu í Dammartin-en-Goële, 35 kílómetra norðaustur af París.
Matvöruverslunin er á Rue Albert Willemetz, hliðargötu nærri gatnamótum Porte de Vincennes og Boulevard de la Peripherique. Matvöruverslunin nefnist Hyper Cacher og er á jarðhæð í grárri byggingu, nærri bensínstöð og veitingastað.
Vopnaður Kalashnikov-rifflum
Um hádegi í dag réðist þungvopnaður maður, sem samkvæmt upplýsingum lögreglu er Amedy Coulibaly, inn í kosher matvöruverslun í Porte de Vincennes í austurhluta Parísarborgar.
Samkvæmt sjónarvottum var hann vopnaður tveimur Kalashnikov-hríðskotarifflum. Það eru samskonar byssur og notaðar voru í hryðjuverkaárásinni sem gerð var á skrifstofur satírublaðsins Charlie Hebdo á miðvikudag.
Coulibaly á að hafa sagt við lögreglumann á vettvangi: „Þú veist hver ég er.“
Birta myndir af grunuðum
Franska lögreglan birto myndir af Coulibaly, sem 32 ára karlmaður, og Hayat Boumeddiene, sem er 26 ára kona. Boumeddiene var ekki stödd í versluninni með Coulibaly en lögreglan hefur lýst eftir henni vegna skotárásar í gær þar sem 26 ára lögreglukona lét lífið.
Coulibaly er með langan sakaferil og hefur margoft verið dæmdur vegna þjófnaðar- og fíkniefnamála. Þá hefur nafn hans komið upp í tengslum við lögreglurannsóknir þar sem nafn Cherif Kouachi hefur komið upp.
Coulibaly kemur frá Juvisy-sur-Orge, smábæ 18 kílómetrum suðaustur af París. Að sögn Le Monde voru Coulibaly og Cherif Kouachi tveir af nánustu fylgjendum hins dæmda hryðjuverkamanns, Djamel Beghal.
Símahleranir lögreglu hafi leitt í ljós að tvímenningarnir hafi heimsótt heimili Beghal í bænum Murat í suðurhluta Frakklands. Boumeddiene hefur verið kærasta Coulibaly frá árinu 2010 og bjó í íbúð hans á meðan hann afplánaði fangelsisdóm.
Skothvellir heyrðust úr versluninni. Samkvæmt frönskum fjölmiðlum stóð skothríð í um 20 sekúndur. Lögregla sendi hluta lögregluliðsins frá Dammartin-de-Goële til Porte de Vincennes.
Svæðinu lokað
Hringvegurinn í kringum borgina var lokaður að hluta í báðar áttir og var nær ómögulegt að fara inn og út úr höfuðborginni í grennd við gíslatökuna. Fjölmiðillinn RTL líkti ástandinu við það sem var í New York borg þann 11. september 2001.
Eiffelturnin og svæðið þar í kring var rýmt fyrr í dag en staðfest hefur verið að hótun hafi borist um árás á svæðið. Innanríkisráðuneytið segir að um gabb hafi verið að ræða.
Nemendur í nálægum skólum var haldið inni í skólastofum sínum. Þeim fyrirmælum var beint til foreldra að sækja ekki börnin sín. Svæðinu var lokað af, þar á meðal neðanjarðarlestarstöðvum. Þá var sporvagnaumferð stöðvuð í grennd við staðinn.
Francois Hollande Frakklandsforseti fylgdist með aðgerðunum tveimur úr aðgerðarstöð í forsetahöllinni.
Fundaði með Sarkozy
Coulibaly var í viðtali við Le Parisien í júlímánuði árið 2009 þar sem til stóð að hann myndi hitta Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta. Coulibaly vann þá í verksmiðju Coca Cola í Grande-Borne í Grigny, úthverfi Parísarborgar.
Fundur þeirra Sarkozy var í tengslum við herferð Frakklandsstjórnar að styðja við bakið á fyrirtækjum sem unnu skipulega að því að ráða ungt fólk í vinnu. „Ég er mjög ánægður. Ég veit ekki hvað ég mun segja við hann. Ég býst við að byrja á að segja „halló“. Vonandi getur forsetinn bjargað mér um vinnu.“
Í framhaldinu sagði Coulibaly að fólk frá Grigny fengi ekki oft tækifæri til að fara í forsetahöllina. „Auk þess þá er Sarkozy ekkert sérlega vinsæll meðal ungs fólks, en það er ekkert persónulegt. Hið sama á við um flesta stjórnmálamenn. Það verður engu að síður flott að hitta hann. Hann er jú forsetinn, sama hvort fólki líki við hann eða ekki.“
Í viðtalinu kemur jafnframt fram að Coulibaly á níu systur.
