Sameina jóga og myndlistina Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 18. janúar 2015 10:30 Eva (Riddhi) og Erna (Siddhi) vilja miðla áfram því fallega jóga sem þeim hefur verið gefið og þær hafa lært af indverskum gúrú. Þær segja að hreint jóga sé andleg leið og við það öðlist maður þá gjöf að tengjast alheimsviskunni. vísir/stefán
Tvíburasysturnar Eva og Erna Sigurðardætur hafa opnað Yogastudio Pooja þar sem þær sameina tvær ástríður í lífi sínu, myndlist og jóga. „Pooja þýðir ást eða tilbeiðsla, og er tilvísun í bhakti-jóga sem er okkar sérstaða. Það er leið hjartans, leiðin heim til að tengjast eigin sál,“ segir Eva. „Við kennum fólki aðferðir til að vinna með eigin líkama, huga og egó svo öll upplifun og áhrif af jógaástunduninni nýtist í andlegu og daglegu lífi. Með því að tengjast betur hjartanu komumst við í dýpri tengsl við lífsorkuna og öðlumst dýpri tengsl við okkur sjálf, annað fólk og umhverfi.“ Systurnar eru báðar með indverskan gúrú sem þær hitta nokkrum sinnum á ári og hafa verið nemendur hans í átta ár. Hann gaf þeim þeirra andlegu nöfn, sem eru Riddhi og Siddhi. „Öll kennsla sem við ætlum að miðla byggir á því sem okkar gúrú hefur kennt okkur. Einnig munum við notfæra okkur bakgrunn okkar og þekkingu í myndlist og bjóða upp á sérnámskeið í jóga og myndlist,“ segir Erna en þær eru báðar menntaðar myndlistarmenn. „Við munum kenna myndlist í gegnum jóga og jóga í gegnum myndlist.“ Fyrir Evu og Ernu er jóga lífsstíll. „Við erum á andlegri leið og langar að miðla til annarra því fallega jóga sem okkur hefur verið gefið. Því ákváðum við að opna stúdíóið,“ segja systurnar að lokum en námskeið og opnir tímar hefjast strax eftir helgi.
Mest lesið Liam Payne úr One Direction látinn Lífið „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Lífið Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Lífið Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Bíó og sjónvarp Páll Óskar kveikti í kofanum Lífið Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Lífið „Ekki þurrt auga í salnum“ Lífið Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Lífið „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Lífið Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ „Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“ Liam Payne úr One Direction látinn Páll Óskar kveikti í kofanum Elskar að vera á níræðisaldri og eiga ungbarn Þurfti að missa þáttinn til að átta sig á næsta skrefi Kveiktu í dansgólfinu í Iðnó „Bullandi stífir í því að halda uppi þessu afneitunarhagkerfi sem við búum í“ „Ekki þurrt auga í salnum“ Krúttlegasti innbrotsþjófur landsins Lén skráð á laugardag ekki framboðslén Verður þér skipt út fyrir kynlífstæki? Þjóðhátíðarstemning á árshátíð Sýnar Orðið það sama og þekkt fataverslun í miðbæ Reykjavíkur Hlutverkið það erfiðasta hingað til Glamúr og glæsileiki í opnun hjá Lovísu DIMMA var flott en einhæf Almenningur um stjórnarslit: „Þetta var komið út í smá rugl“ Sjarmerandi íbúð listafólks í miðbænum Pískur sem þróaðist í hættulegustu samsæriskenningu síðari tíma Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman Fylgdist með Pétri Jóhanni byggja útieldhús Dóttir Ingós og Alexöndru komin með nafn „Lífsstíllinn er að drepa okkur“ Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum Ótrúleg tilviljun er Stefán brenndi fánann Hvað eru plötusnúðarnir að hlusta á? „Ég nenni ekkert að hafa eitthvað að sanna“ „Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Krakkatían: Óveður, flugvélar og kirkjur Sjá meira