Lífið

Rosie O‘Donnell lýsir eftir sautján ára dóttur sinni

Atli Ísleifsson skrifar
Rosie O'Donnell með dætur sínar Vivienne Rose (til vinstri) og Chelsea Belle (til hægri).
Rosie O'Donnell með dætur sínar Vivienne Rose (til vinstri) og Chelsea Belle (til hægri). Vísir/Getty
Bandaríski grínistinn Rosie O‘Donnell hefur lýst eftir sautján ára dóttur sinni Chelsea sem hefur ekki sést frá því að hún yfirgaf heimili sitt fyrir viku.

Rosie O‘Donnell biðlaði fyrr í dag til almennings við að aðstoða við leitina að Chelsea sem fór með sex mánaða gamlan hund sinn af heimili sínu í Nyack í New York-ríki á þriðjudaginn í síðustu viku.

Í frétt Wall Street Journal kemur fram að Rosie hafi verið í samskiptum við lögreglu.

Talsmaður fjölskyldunnar segir að Chelsea glími við ótilgreind andleg veikindi og hafði hætt að taka lyf sín dagana áður en hún hvarf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×