Lífið

Bónus í Kringlunni fylltist af menntskælingum: Buðu í kaffiboð í búðinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það er allt að fyllast.
Það er allt að fyllast. visir/vilhelm
Heill hellingur af menntskælingum eru mættir í Bónus í Kringlunni til þess eins að fá sér kaffibolla.

Stofnaður var Facebook viðburður undir nafninu Bónus-kaffiboð á dögunum og hafa yfir 300 nemendur boðað komu sínu í hádeginu  í dag.

Bónus hefur þann vanann á að bjóða viðskiptavinum sínum upp á frían kaffibolla og ætla nemendurnir greinilega að nýta sér það. 

Það er spurning hvort 300 nemendur mæti í Bónus í Kringluna, þá er þörf á tveimur til þremur kaffikönnum, í það minnsta. 

vísir/vilhelm





Fleiri fréttir

Sjá meira


×