Lífið

Náði mynd af Cameron á almennu farrými að háma í sig Pringles

Stefán Árni Pálsson skrifar
Cameron virtist ánægeður með snakkið.
Cameron virtist ánægeður með snakkið. vísir/twitter
Það er greinilega ekkert alltaf fyrsta farrými og dekur ef þú ert forsætisráðherra Bretlands en einn farþegi EasyJet tók skemmtilega mynda af David Cameron í flugvél á dögunum.

Cameron sat í nokkuð þröngu sæti og gúffaði í sig papriku Pringles, sem er snakk sem margir kannast við. Var hann á leiðinni frá Bretlandseyjum í frí til Portúgal.

Kona að nafni Ashleigh birti meðfylgjandi mynd á Twitterreikningi sínum og skrifaði með færslunni: „Forsætisráðherrann var þremur sætum frá mér étandi Papriku Pringles, hjálpið mér!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×