Lífið

Bill Gates borðaði í Æðahelli

Birgir Olgeirsson skrifar
Bill Gates ásamt eiginkonu sinni Melindu Gates.
Bill Gates ásamt eiginkonu sinni Melindu Gates. Vísir/Getty
Bill Gates, stofnandi Microsoft, borðaði í Æðahelli í norðanverðri Heimaey fyrr í dag. Frá þessu er greint á vef Eyjafrétta þar sem greint er frá dvöl þessa ríkasta manns heims í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir segja Gates hafa farið í siglingu með Stóra Erni, skemmtibát Ribsafari, eftir að hafa komið með fjölskyldu sinni og fylgdarliði með þyrlu rétt um hádegi í dag.

Flutti Stóri Örn Bill Gates og föruneyti hans í Æðahelli þar sem borðað var. Eftir það tók við sigling í kringum Vestmannaeyjar en Eyjafréttir segja Gates hafa komið í land um klukkan hálf fjögur í dag og skoðað sig um í Vestmannaeyjum.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.