
Syndir mæðranna
Í uppeldi mínu var femínismi aldrei til umræðu. Ég veit í sjálfu sér ekki hver ástæðan var eða hvort það hafi verið ástæða yfir höfuð. Misrétti kynjanna var fjarskyldur frændi og þörf fyrir kvennabaráttu fullkomlega framandi. Allt í gegnum barnæsku mína, menntaskólaárin og háskólaárin gat ég ekki séð að kyn mitt hefði nokkra þýðingu aðra en líffræðilega. Aldrei fann ég til vanmáttarkenndar gagnvart gagnstæða kyninu og aldrei upplifði ég skerta möguleika vegna kyns. Aldrei. Ekki einu sinni.
Snemma í barnæsku innrætum við stúlkum stóra drauma og háleitar hugmyndir. Framtíðin ógnarstór hvítur strigi. Möguleikarnir margvíslegir og tækifærin endalaus – þenjast út með alheiminum og eiga sér engin takmörk. Við hvetjum þær til að ganga menntaveginn, hafa metnað og stefna hátt. Við segjum samfélagið betra með fleiri konum við stjórnvölinn. Með fleiri konum í ábyrgðarstöðum. Með fleiri konum í efstu þrepunum. Þetta eru skilaboðin sem við sendum. Þetta eru skilaboðin sem þær fá.
Hafandi móttekið þessi skilaboð frá blautu barnsbeini var það ákveðið áfall - raunar reiðarslag - þegar hulunni var svipt af raunveruleikanum og samfélagið tók niður grímuna. Þegar viðhorfin breyttust. Þegar ég varð móðir.
Síðustu ár hef ég staðið frammi fyrir spurningum. Óteljandi spurningum sem draga heimsmynd mína í efa. Fólk virðist hafa af því djúpstæðar áhyggjur að móðir vinni fulla vinnu. Því virðist finnast sjálfsagt að konur klári nokkrar háskólagráður en læsi þær svo á myrkum stað þegar móðurhlutverkið knýr dyra. Því virðist finnast ég - og aðrar útivinnandi mæður - eiga eitthvað vantalað við samvisku okkar. Að ógleymdri sjálfselskunni. Annað sem ég hef heyrt áður.
Þó Ísland standi framarlega á sviði kynjajafnréttis heyrist enn hringla í hlekkjunum sem takmarka svigrúm kvenna utan heimilisins. Sú takmörkun er ekki fólgin í skertum möguleikum á menntun og tækifærum. Öllu heldur viðhorfum. Viðhorfum til kvenna og kynjahlutverka. Viðhorfum sem virðast svo brennimerkt í þjóðarsálina að hvorki pendúlar né jónað vatn gætu sært úr þeim rotvarnarefnin.
Ef við viljum sjá fleiri konur í fremstu víglínu - eða bara einhverri víglínu - þarf að breyta þessum viðhorfum. Viðhorfum sem sífellt setja konur í tapsætið. Viðhorfum sem skipa þeim að velja. Fjölskyldu eða frama. Ómögulegt sé að gera bæði án þess að bregðast á einhverri vígstöð. Það er kominn tími til að setja punkt aftan við vitleysuna. Á meðan maðurinn minn hefur ekki samviskubit hef ég ekki samviskubit. Á meðan maðurinn minn fær ekki spurninguna vil ég ekki spurninguna. Hættið að senda okkur þessi skilaboð. Hættið að spyrja.
Tengdar fréttir

Úlfar í trúargæru
Þegar ég gekk heim úr vinnu í vikunni sem leið mætti ég nágrannakonu minni. Hún býr í næsta húsi og börnum okkar er vel til vina.

Af hræsni og mittismálum
Hefur lyktarskynið brugðist mér þegar ég finn þef af hræsni?
Skoðun

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar

Hin raunverulega byggðastefna
Jón Þór Kristjánsson skrifar

Sameining Garðabæjar og Hafnarfjarðar – kostir – ókostir - skynsemi
Ó. Ingi Tómasson skrifar

Rúmir 30 milljarðar í fangelsi
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Sérstök staða orkusveitarfélaga!
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Miklar endurbætur á lánum menntasjóðs námsmanna
Elín Íris Fanndal skrifar

Drögum úr fordómum í garð Breiðholts
Alex Vor Ólafs,Jörundur Þór Hákonarson,Theodóra Líf Reykdal skrifar