„Það var virkilega vont að horfa á þetta“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. mars 2015 18:00 Daníel Rafn er ákærður fyrir að hafa ráðist á Stefán Loga í Ystaseli vorið 2013. Vísir
Ýmsir voru kallaðir til í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag til að gefa skýrslu í máli ákæruvaldsins gegn Daníel Rafni Guðmundssyni. Hann er ákærður fyrir að hafa ráðist á Stefán Loga Sívarsson í Ystaseli þann 17. maí 2013. Á meðal þeirra sem gáfu skýrslu voru þeir Stefán Blackburn og Sævar Hilmarsson sem skutluðu Stefáni Loga í Breiðholtið daginn sem árásin átti sér stað. Stefán Blackburn og Sævar fóru eftir að hafa keyrt Stefán Loga og spurði dómari hvers vegna þeir hafi farið. „Af því að Stefán bað mig um að fara. Hann ætlaði bara að tala við Daníel, sagði að hann væri vinur sinn,“ sagði Stefán. Þá var hann spurður hvað hann hefði heyrt um árásina í Ystaseli. Sagðist hann hafa heyrt að ráðist hafi verið á Stefán og var spurður frá hverjum hann hefði þá vitneskju.„Frá vitnum,“ svaraði Stefán. Dómari spurði hann þá frá hvaða vitnum, hvort hann gæti gefið einhver nöfn. Sagðist Stefán þá bara hafa heyrt af árásinni frá Stefáni Loga sjálfum. Sjá einnig: Óttaðist að Stefán Logi myndi drepa sigÁttu Daníel Rafn og Stefán Blackburn að slást? Stefán sagði að þegar hann hafi komið aftur í Ystasel hafi sjúkrabíll verið kominn á vettvang og Stefán Logi á leiðinni á sjúkrahús. Verjandi Daníels Rafns spurði Stefán svo hvort að hann og Daníel hafi mögulega átt að slást og þrímenningarnir því farið í Ystasel. „Ég veit það ekki. Danni var bara mjög æstur og öskraði í símann.“Þegar hann var spurður hvers vegna Daníel hafi verið svona æstur svaraði Stefán: „Af því að hann hélt að ég hefði nauðgað konunni sinni.“Maður í gulum ermalausum bol gekk sérstaklega hart framÞá voru tveir nágrannar Daníels, hjón, kölluð til sem vitni. Konan var að vinna í garðinum þegar hún sá slagsmálin brjótast út. „Einn lá og annar lamdi. Það var virkilega vont að horfa á þetta. Ég hringdi á lögregluna, ég vildi ekki hafa það á samviskunni að maður yrði drepinn þarna fyrir framan mig, en þá var búið að hringja á lögregluna út af þessu.“ Konan kvaðst fyrir dómi ekki muna eftir klæðaburði mannanna sem voru að slást eða hver var að berja hvern. Maður konunnar mundi hins vegar að maður í gulum ermalausum bol hafi gengið sérstaklega hart fram. Spurður hvort hann myndi þekkja þann mann aftur í sjón, játti hann því og gaf til kynna með bendingu að um Daníel hafi verið að ræða. Sjá einnig: „Skil ekki af hverju hann er ekki ákærður fyrir tilraun til manndráps“Vildi ekki koma nálægt málinu út af Stefáni Loga Þá bar vitni maður sem þekkt hefur Daníel Rafn frá því þeir voru litlir. Var hann gestkomandi í Ystaselinu. Sagði hann að Stefán Logi hafi lamið Daníel í hausinn með kylfu. Saksóknari spurði hann svo hverjir hafi lent í átökum og hvort hann gæti lýst þeim. „Stefán Logi og Daníel eru að slást og þetta endar úti á götu. Þeir eru þarna handalögmálum. Þeir voru að kýla hvorn annan, voru með öskur og læti.“Maðurinn hafi svo ákveðið að fara af vettvangi þar sem hann vildi ekki koma nálægt málinu vegna þess að það tengdist Stefáni Loga. Læknir sem skoðaði Stefán Loga þegar hann kom á bráðamóttöku eftir árásina gaf einnig skýrslu. Sagði hann að Stefán Logi hefði augljóslega orðið fyrir alvarlegri líkamsárás. Hann hafi verið með mikla áverka í andliti og merki um beinbrot. Þá var læknirinn spurður hvort að hann teldi áverkana benda til þess að vopnum hafi verið beitt. Hann sagðist ekkert geta fullyrt um það en þó væri það ekki ólíklegt miðað við áverkana sem hann hafði.
Tengdar fréttir Taldi manninn látinn Íbúi í Ystaseli í Breiðholti sem kom að manninum sem þar var misþyrmt hrottalega í gær segist í fyrstu hafa talið að hann væri látinn. 18. maí 2013 18:59 Uppgjör í undirheimum: Ákærður fyrir hrottalega líkamsárás á Skeljagrandabróður Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Daníel Rafni Guðmundssyni fyrir stórfellda líkamsárás á Stefán Loga Sívarsson í Ystaseli þann 17. maí í fyrra. 3. desember 2014 11:12 Ekki sérstakur viðbúnaður hjá lögreglu „Við vitum af þessum orðrómi og öðru slíku en það er enginn sérstakur viðbúnaður,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, spurður hvort lögreglan væri með sérstakan viðbúnað vegna meintra hótana og vopnasöfnunar aðila sem tengjast líkamsárásinni í Ystaseli. 24. maí 2013 06:00 Segist saklaus af árás á Stefán Loga Daníel Rafn Guðmundsson lýsti yfir sakleysi sínu í morgun við þingfestingu í máli ríkissaksóknara á hendur honum fyrir stórfellda líkamsárás á Stefán Loga Sívarsson í Breiðholti í maí í fyrra. 8. desember 2014 09:38 Undirheimar nötra eftir Ystaselsárásina Yfirlögregluþjónn segir almenning ekki þurfa að hafa áhyggjur af mögulegum eftirmálum líkamsárásar í Ystaseli. Dæmdir ofbeldismenn sem málinu tengjast ganga lausir. Fullyrt er að vinir árásarþolans hafi vopnbúist og hyggi á hefndir. 21. maí 2013 10:15 Mest lesið „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Innlent Joe Biden með Covid Erlent Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Innlent Gekk berserksgang með öskrum og ólátum Innlent Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Innlent Hefja viðgerðir þó það gæti gosið á næstu dögum eða vikum Innlent Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Innlent Hét því að endurvekja bandaríska drauminn Erlent Samfélagið þurfi á börnum að halda Innlent Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Innlent Fleiri fréttir Met slegið í fjölda kaupsamninga vegna uppkaupa Þórkötlu Gekk berserksgang með öskrum og ólátum „Þetta eru í rauninni mjög sorglegar niðurstöður“ Hefja viðgerðir þó það gæti gosið á næstu dögum eða vikum Samfélagið þurfi á börnum að halda Viðgerðir á meðan búist er við gosi og skötuveisla um hásumar Hinn látni í Suðursveit ungur pólskur maður Hengdu Palestínufána á Hallgrímskirkjuturn Mótmælir gjaldtöku við Egilsstaðaflugvöll með gagnkvæmu skutli Sautján milljóna króna greiðslan vekur hneykslan Dósent við HÍ „óskaði þess að árásarmaðurinn hefði hitt“ Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Þrettán þúsund krónur fyrir nótt í tjaldi Íslendingur á sextugsaldri fannst látinn í Taílandi Dvaldi lengi í Engey áður en hún synti til baka í flasið á hvalaskoðunarskipi Metfjöldi sérsveitarmanna á Þjóðhátíð í sumar Ákærður fyrir að stinga mann í heimahúsi í Súðavík Veitingamenn berjist í bökkum Stórhættulegur framúrakstur á Holtavörðuheiði Íslensk kona og fjölskylda hennar á sjúkrahúsi eftir árás á Krít Diljá Mist segir hræsni einkenna íslenska femínista Sérsveit þurfti ekki að skerast í leikinn vegna ferðamanns á tjaldstæði Frjósemi á Íslandi aldrei verið minni en í fyrra Telur ekki trúlegt að komið verði á samkomutakmörkunum Laðar fjárfesta að til að halda Skaganum á Skaganum Þrjár líkamsárásir, vinnuslys og mannlaus bíll á ferð „Væri ekki að fara ef ekki væri fyrir góðvild fólks“ Fyrsta heimasmíðaða útvarp landsins til sýnis „Stanslaus barátta við það að vera ekki með menn í einangrun“ Grátlegt að veiðarnar séu kallaðar af meðan sjórinn er fullur af fiski Sjá meira
Taldi manninn látinn Íbúi í Ystaseli í Breiðholti sem kom að manninum sem þar var misþyrmt hrottalega í gær segist í fyrstu hafa talið að hann væri látinn. 18. maí 2013 18:59
Uppgjör í undirheimum: Ákærður fyrir hrottalega líkamsárás á Skeljagrandabróður Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Daníel Rafni Guðmundssyni fyrir stórfellda líkamsárás á Stefán Loga Sívarsson í Ystaseli þann 17. maí í fyrra. 3. desember 2014 11:12
Ekki sérstakur viðbúnaður hjá lögreglu „Við vitum af þessum orðrómi og öðru slíku en það er enginn sérstakur viðbúnaður,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, spurður hvort lögreglan væri með sérstakan viðbúnað vegna meintra hótana og vopnasöfnunar aðila sem tengjast líkamsárásinni í Ystaseli. 24. maí 2013 06:00
Segist saklaus af árás á Stefán Loga Daníel Rafn Guðmundsson lýsti yfir sakleysi sínu í morgun við þingfestingu í máli ríkissaksóknara á hendur honum fyrir stórfellda líkamsárás á Stefán Loga Sívarsson í Breiðholti í maí í fyrra. 8. desember 2014 09:38
Undirheimar nötra eftir Ystaselsárásina Yfirlögregluþjónn segir almenning ekki þurfa að hafa áhyggjur af mögulegum eftirmálum líkamsárásar í Ystaseli. Dæmdir ofbeldismenn sem málinu tengjast ganga lausir. Fullyrt er að vinir árásarþolans hafi vopnbúist og hyggi á hefndir. 21. maí 2013 10:15