Bíó og sjónvarp

Ásgrímur fer með Reykjavík til Gautaborgar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nanna Kristín Magnúsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson leika hjón í krísu í Reykjavík.
Nanna Kristín Magnúsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson leika hjón í krísu í Reykjavík. Mynd af tökustað
Ásgrími Sverrissyni kvikmyndaleikstjóra hefur verið boðið að kynna kvikmynd sína Reykjavík fyrir söluaðilum og hátíðum á kaupstefnu kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg, sem hefst 29. janúar.

Myndin er ljúfsár tragikómedía og fjallar um raunir reykvískra hjóna sem eru leikin af Nönnu Kristínu Magnúsdóttur og Atla Rafni Sigurðarssyni. Meðal þeirra sem koma einnig við sögu eru yngri konur með áhuga á eldri mönnum og vinur með gráa fiðringinn. 

Reykjavík er gerð eftir handriti Ásgríms. Þetta er hans fyrsta leikna mynd í fullri lengd en hann hefur lengið verið í lykihlutverki í íslensku kvikmyndagerð. Myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum Senu þann 11. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.