Bíó og sjónvarp

Þegar Matthew Perry fór á fyllerí með M. Night Shyamalan

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Matthew Perry.
Matthew Perry. vísir/getty
Bandaríski leikarinn Matthew Perry sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Chandler í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Friends var gestur spjallþætti Graham Norton á BBC í gærkvöldi.

Í þættinum spurði Norton Perry ýmissa spurninga um Chandler og stóð leikarinn sig með ágætum.

Hann sagði síðan frá því þegar hann fór út að skemmta sér með með kvikmyndaleikstjóranum M. Night Shyamalan en hann gerði meðal annars myndirnar The Sixth Sense og Signs.

Að sögn Perry náðu þeir Shyamalan vel saman.

„Ég var sannfærður um að ég yrði kvikmyndastjarna því Shyamalan hló að öllum bröndurunum mínum, ég held hann hafi verið mikill Friends-aðdáandi, honum líkaði allavega mjög vel við mig,“ sagði Perry.

Síðar um kvöldið kom þó í ljós að Perry er ekkert sérstaklega mannglöggur þar sem maðurinn sem hann hafði verið á fylleríi með allt kvöldið var alls ekkert M. Night Shyamalan heldur einfaldlega indverskur maður í veitingahúsabransanum sem líktist kvikmyndaleikstjóranum mjög.


Tengdar fréttir

Vinirnir koma saman á ný

Leikararnir sex hafa samþykkt að koma fram í tveggja klukkustunda löngum þætti hjá NBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.