Til dæmis það að Ísland eigi innan við hundrað atvinnumenn í knattspyrnu, hér búi svipað margir og í ensku borginni Leicester ... og það að Jón Daði Böðvarsson, framherji liðsins, vinni á bensínstöð á veturna þegar hann er ekki að spila fótbolta.
Nei, bíddu. Ha? Hvaðan kom þetta? Spólum aðeins til baka.
„Ég var veikur heima, einn, að horfa á leikinn og ákvað að vera að fíflast eitthvað á Twitter samhliða því,“ segir Dagur Hjartarson, rithöfundur og virkur Twitter-spaugari. Dagur tók upp á því að setja inn fáránlegar staðreyndir um íslenska landsliðið á ensku, sem flestir Íslendingar sjá strax að eru uppspuni frá rótum.
This is Ólafur Guðmundsson who coached the Icelandic team from 1950 until he died in 1996. #ENGICE #emísland pic.twitter.com/0iELKmkA7q
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) June 27, 2016
„Ég hélt nú í fyrstu að þetta myndi ekki hljóta jafnmikla útbreiðslu og það hlaut,“ viðurkennir Dagur. „Ég hef enga yfirsýn yfir hvert þetta er farið núna, það eru margar milljónir manna búnar að sjá þessi tíst og þetta er bara á einhverri óstöðvandi siglingu um ranghala internetsins.“
Lygilegu „staðreyndirnar“ sem Dagur deildi með heimsbyggðinni – til að mynda að forseti Íslands, Álfur Jónsson, væri áhugaknattspyrnumaður, og að Kolbeinn Sigþórsson framherji væri fyrrverandi grunnskólakennari í afskekktu sjávarþorpi – rötuðu mjög víða. Blaðamaður í hlaðvarpsþætti The Guardian sagði hlustendum frá húsinu sem Ragnar Sigurðsson ólst upp í (í raun sjóminjasafnið Ósvör) og Dagur segir fjölmiðlamenn frá Ástralíu, Belgíu og Brasilíu hafa haft samband með umfjöllun um Ísland í huga.
This is where Ragnar Sigurðsson, the Icelandic goalscorer, grew up. #engice #emísland pic.twitter.com/LTSXmafX3C
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) June 27, 2016
Dagur segir marga greinilega trúa öllu sem sett var inn, þó að flest ætti ekki að vera erfitt að afsanna. Til að mynda er með einfaldri leit á netinu hægt að komast að því að Jón Daði Böðvarsson er atvinnumaður með þýska liðinu Kaiserslautern og því ansi ólíklegt að hann vinni á íslenskri bensínstöð á veturna.
„Ég sá nú bara að það var einhver ungversk fréttasíða sem gerði frétt um íslenska landsliðið og byggði hana eiginlega bara á fréttunum mínum,“ segir Dagur. „Þannig að þetta snerist upp í listrænan gjörning þar sem ég afhjúpaði hvernig internetið virkar, hvernig við förum með upplýsingar og hvernig blaðamenn fara með staðreyndir. Þetta varð eiginlega minn best heppnaði gjörningur.“
Dagur segir þó marga greinilega hafa áttað sig á gríninu. Til að mynda hafi þýsk vefsíða gert frétt um uppátækið. En var eitthvað sem enginn trúði?
„Nei, ég held að það hafi einhverjir trúað öllu,“ segir Dagur og hlær. „Ég held að mjög margir hafi trúað þessu með bensínstöðina, þrátt fyrir að myndin sé ábyggilega tekin í kringum 1950. Það kannski sýnir nú kannski bara að margir halda að Ísland sé einhverskonar Kúba norðursins.“
The striker Böðvarsson works at this gas station in the winter time but plays football in summer #engice #emísland pic.twitter.com/G6WPASqIfX
— Dagur Hjartarson (@DagurHjartarson) June 27, 2016
„Þannig að ég held að þetta varpi ákveðnu ljósi á okkur og hvernig við förum með upplýsingar.“