Lífið

Eyðilagði Ófærð fyrir enskum manni í beinni: „Litli skíturinn þinn“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjörvar er varla í uppáhaldi hjá Mike eftir símtalið í morgun.
Hjörvar er varla í uppáhaldi hjá Mike eftir símtalið í morgun. vísir
Hjörvar Hafliðason, útvarpsmaður á FM957, heyrði í enskum félaga sínum í útvarpsþættinum Brennslunni í morgun og var tilgangurinn aðeins einn, hann ætlaði sér að segja honum hver morðinginn væri í sjónvarpsþáttunum Ófærð.

Hjörvar var að hefna sín á manninum sem hafði á árum áður sagt honum hvernig söguþráðurinn í myndinni The Sixth Sense væri. Maðurinn sem Hjörvar talaði við heitir Mike og er breskur en Englendingar hafa haft mikinn áhuga á íslensku þáttunum.

„Þetta er frábær þáttur,“ sagði Mike rétt áður en Hjörvar tilkynnti honum hver væri morðinginn.

„Af hverju í fjandanum ertu að gera þetta?,“ sagði Mike við útvarpsmanninn, mjög svo pirraður og bætti við; „litli skíturinn þinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.