Liverpool goðsagnirnar mæta Real Madrid á Anfield Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2016 22:30 Robbie Fowler verður fyrirliði Liverpool-liðsins. Vísir/Getty
Margir gamlir leikmenn Liverpool klæðast Liverpool-treyjunni aftur á Anfield á næsta ári þegar Liverpool tekur á móti Real Madrid í góðgerðaleik. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Liverpool og Real Madrid mætast í svokölluðum „Corazon Classic“ en þetta er endurtekning á góðgerðaleik félaganna frá því í júní 2015 á Santiago Bernabeu. Liverpool komst í 2-0 í leiknum fyrir einu og hálfu ári síðan en Real Madrid snéri leiknum við og vann á endanum 4-2 sigur fyrir framan sjötíu þúsund áhorfendur á Bernabeu. Nú hefur verið ákveðið að endurtaka leikinn en að þessu sinni fer hann fram á Anfield, heimavelli Liverpool. Leikurinn fer fram laugardaginn 25. mars 2017 en þetta er landsleikjahelgi og því ættu stuðningsmenn Liverpool að geta fjölmennt á völlinn til að sjá gömlu stjörnurnar sína. Robbie Fowler verður fyrirliði Liverpool í leiknum og Ian Rush, markhæsti leikmaður Liverpool frá upphafi, verður spilandi knattspyrnustjóri liðsins. Meðal þeirra Liverpool-manna sem hafa staðfest komu sína eru menn eins og Gary McAllister, Luis Garcia, Jamie Carragher, Patrik Berger, Salif Diao, Jerzy Dudek, Stephane Henchoz, Jason McAteer, Vladimir Smicer, David Thompson, Bjorn Tore Kvarme, Sander Westerveld, Dietmar Hamann, John Aldridge, John Arne Riise, Phil Babb, Daniel Agger og Michael Owen. Það verður líka fullt af gömlum kempum í liði Real Madrid eða leikmenn eins og þeir Roberto Carlos, Emilio Butragueño, Luis Figo og Steve McManaman. Steve McManaman og Michael Owen gætu spilað með báðum félögum enda léku þeir á sínum tíma með bæði Liverpool og Real Madrid. Jerzy Dudek fór líka til Real Madrid eftir sex ár hjá Liverpool en var þá varamarkvörður á Bernabeu. Allur ágóði af þessum leik mun fara til LFC Foundation sem eru opinber góðgerðasamtök félagsins. Það mun kosta 20 pund fyrir fullorðna og 5 pund fyrir krakka að fara á leikinn eða 2800 og 700 krónur íslenskar. Leikurinn verður auk þess sýndur beint á LFCTV.Goðsagnir Liverpool og Real Madrid.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Klopp ráðinn til Red Bull en skýr klásúla í samningnum Fótbolti Draumur að rætast hjá bræðrunum Fótbolti Dómarar í ævilangt bann eftir kynlífsmyndband Fótbolti Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Enski boltinn „Fyrir mig er mikilvægt að liðið geri það sem við biðjum um“ Körfubolti „Sóknin alls ekki klár hjá okkur“ Körfubolti „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Handbolti GAZið: „Þegar svona mikil velgengni er, þá kemur smá doði í mannskapinn“ Körfubolti Félögunum refsað en Jackson sleppur Enski boltinn Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun Handbolti Fleiri fréttir Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Sjá meira