Lífið

Kardashian-klanið neyddist til að lenda þyrlunni

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Kardashian-fjölskyldan er vafalítið ein sú frægasta í heimi.
Kardashian-fjölskyldan er vafalítið ein sú frægasta í heimi. mynd/snapchat
„Neyðarlending en við erum heil á húfi. Við lentum á golfvelli,“ segir Kim Kardashian á Snapchat-aðgangi sínum. Hún er nú á ferð um landið ásamt eiginmanni sínum, Kanye West, og systur, Kourtney Kardashian.

Ástæða lendingarinnar var að sögn Kim sætisól sem hékk út úr þyrlunni en hún hafði slegist utan í skrokk vélarinnar.

Kim Kardashian birti þessa mynd á Snapchat-aðgangi sínum.
Tilgangur heimsóknar fjölskyldunnar er að taka upp tónlistarmyndband við eitt af lögunum á nýútkominni plötu Kanye, The Life of Pablo, en á huldu er um hvaða lag er að ræða. Platan kom út 14. febrúar síðastliðinn og er sjöunda plata rapparans.

Heimsóknina virðast þau jafnframt nýta í að skoða landið, en þau hafa meðal annars gert sér ferð að Gullfossi og Geysi og farið upp í turn Hallgrímskirkju, svo fátt eitt sé nefnt. Þá snæddu þau kvöldverð á Grillmarkaðnum í gær, en þau greina skilmerkilega frá ferðalagi sínu á hinum vinsæla samfélagsmiðli, Snapchat.

Þau virðast skemmta sér prýðilega hér á landi.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.