Hljómsveitin Náttsól sigraði á dögunum í alþjóðlegu söngvakeppninni Vodafone Freezone High School Music Contest.
Náttsól er á mikilli siglingu þessa dagana en sveitin vann söngvakeppni framhaldsskólana í síðasta mánuði með laginu Hyperballad eftir söngkonuna Björk. Sveitin fékk stuttu seinna óvænt boð um að fara til Tyrklands til að keppa fyrir Íslands hönd í Vodafone Freezone High School Music Contest.
Keppninni var skipt upp og var keppt á milli framhaldsskólana í Tyrklandi og síðan á milli þjóða. Náttsól stóð uppi sem sigurvegari eftir langa keppni, en hún byrjaði á hádegi og var verðlaunaafhendingin klukkan átta um kvöldið enda 39 hljómsveitir sem þurftu að flytja lag sitt.
Hér má sjá þegar tilkynnt var um úrslit keppninnar.
Þetta er 19. árið sem keppnin er haldin og í fyrsta skipti sem íslensk hljómsveit fær boð um þátttöku.
„Davíð Lúther, fjölmiðlafulltrúi Gretu Salóme, þekkir eitthvað til þarna í Tyrklandi var beðin um að vera í dómnefnd og taka með sér hljómsveit sem gæti gert góða hluti úti. Hann veðjaði á okkur og það reyndist vera rétt ákvörðun, enda sigruðum við þessa skemmtilegu keppni,“ segir Guðrún Ólafsdóttir, söngkona í Náttsól.
„Þetta var virkilega skemmtilegt og gefur okkur gríðarlega reynslu að hafa farið til Tyrklands.“
Hér fyrir neðan má síðan sjá flutninginn sem tryggði Náttsól sigurinn í söngvakeppni framhaldsskólanna.
Náttsól sigraði í alþjóðlegri söngvakeppni í Tyrklandi
Tengdar fréttir
Keppa fyrir Íslands hönd í alþjóðlegri framhaldsskólakeppni
Íslenska hljómsveitin Náttsól er stödd núna í Istanbul Tyrklandi þar sem þau munu keppa fyrir hönd Íslands í alþjóðlegri framhaldsskólakeppni.
Menntaskólinn við Hamrahlíð vann Söngkeppni framhaldsskólanna
Hljómsveitin Náttsól flutti lagið Hyperballad eftir Björk Guðmundsdóttur.
Tóku þátt í Söngvakeppni framhaldsskóla og Músíktilraunum sömu helgi
Hljómsveitin Náttsól frá Menntaskólanum í Hamrahlíð bar sigur úr bítum í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór um síðustu helgi. Þær fluttu lagið Hyperballad eftir Björk Guðmundsdóttur.