FH-ingur komst upp með óíþróttamannslega hegðun í gær | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2016 13:30 Benedikt Reynir Kristinsson. Vísir/Vilhelm
Haukar og FH gerðu 26-26 jafntefli í Hafnarfjarðarslagnum á Ásvöllum í gær og að venju voru menn ekkert að gefa eftir í baráttunni við nágranna sína í Hafnarfriðinum. RÚV hefur birt myndband inn á vefnum sínum þar sem FH-ingurinn Benedikt Reynir Kristinsson sést beita óíþróttamannslegri aðferð til að trufla skiptingu Hauka í leiknum í gær. Haukamaðurinn Leonharð Þorgeir Harðarson var þarna nýbúinn að skora sitt eina mark í leiknum og var að hlaupa útaf til að skipta á milli sóknar og varnar. Benedikt Reynir byrjar á því að stíga fyrir hann og svo gerir hann gott betur og hrindir Leonharð þannig að Haukamaðurinn skellur í gólfinu.Sjá einnig:Háspenna á Ásvöllum Fremsta dómarapar landsins, Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, voru að dæma leikinn í gær en þeir gerðu enga athugasemd við hegðun Benedikts í þessu atviki. Benedikt Reynir Kristinsson lét líka eins og hann væri alsaklaus og það virkaði vel því ekkert var dæmt. Leonharð skoraði þarna síðasta mark fyrri hálfleiksins og kom Haukum í 10-9. Það er hægt að sjá þetta umdeilda atvik með því að smella hér.
Olís-deild karla Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Sjá meira