Innlent

Grunnskólakennari segir nýgerðan kjarasamning ekki nógu góðan: „Við erum ekki metin að verðleikum“

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Ekki er ljóst hvort áttatíu kennarar sem sögðu upp störfum sínum hjá Reykjavíkurborg á síðustu vikum komi til með að draga uppsagnir sínar til baka þrátt fyrir að grunnskólakennarar hafi samþykkt kjarasamning sem undirritaður var við sveitarfélögin í lok nóvember.

Grunnskólakennarar samþykktu nýgerðan kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga í gær með um 55% greiddra atkvæða. Um 42% sögu nei.

Þrátt fyrir að nýgerður kjarasamningur hafi verið samþykktur í gær er grasrótin hundóánægð. Nær allir kennarar í Árbæjarskóla höfnuðu samningnum.

Á kennarastofunni í dag var aðalumræðuefnið að kjarasamningurinn og samþykkt hans.

„Mér líst bara mjög illa á þetta. Ég sagði nei. Ég er búin að kenna í 19 ár og ég hef aldrei samþykkt samning. 11% er ekkert. Við erum svo langt á eftir framhaldskólakennurum sem við berum okkur saman við og þetta var bara lélegt,“ sagði Helga Guðjónsdóttir, kennari við fréttastofu í dag.

Mjög margir kennarar sögðu störfum sínum lausum þegar samninganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaga unnu að gerð samningsins.

„Ég er nokkuð viss um að þeir munu ekki draga uppsagnir sínar til baka. Þessi samningur er bara ekki nógu góður og ég hugsa að það komi bara fleiri í kjölfarið. Við bara erum ekki metin að verðleikum og ég ætla ekki að fara tala um álag eða annað. Auðvitað er álag í öllum vinnum en við bara þurfum hærri laun og leiðréttingu launa. Þetta var bara ekki nógu gott og ég sagði nei,“ sagði Elín Björg Guðjónsdóttir, kennari.

Kennararnir voru sammála um að það hafi komið á óvart hversu fljótt náðist samkomulag um samninginn hjá Ríkissáttasemjara

„Það náttúrulega var pressa og mér finnst það segja dálítið mikið um samninginn að átta kennarar segja uppstörfum í Réttarholtsskóla daginn sem samningurinn kemur,“ segir Helga.

Tíu kennarar sögðu upp í Árbæjarskóla og hafa þeir ekki tekið ákvörðun um hvort þeir dragi uppsagnir sínar til baka.

„Framhaldið er bara ekki gott. Manni finnst eins og stéttin sé sundruð. Auðvitað þurfum við að vinna saman og komast að sameiginlegri niðurstöðu sem stétt,“ sagði Guðný Svandís Guðjónsdóttir, kennari.

Og kennararnir kölluðu eftir breytingum í forystu grunnskólakennara

„Það er kominn tími til að skipta um fólk í brúnni, það er kannski búið að vera svolítið lengi. Við þurfum kannski líka bara að skoða hvernig við kjósum okkur okkar fólk. Það eru ekkert allir í boði,“ sagði Helga.


Tengdar fréttir

Samningar samþykktir en grasrótin óánægð

Naumur meirihluti grunnskólakennara samþykkti kjarasamning í gærkvöldi. Kjaradeilan varð til þess að hundrað kennarar sögðu upp störfum. Grasrót kennara kallar eftir afsögn forystu kennara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×