Gera myndlist sýnilegri með vefgalleríi Guðný Hrönn Antonsdóttir skrifar 13. desember 2016 18:00 Þær Þórdís Erla Zoëga, Elísabet Alma Svendsen og Sigþóra Óðinsdóttir komu nýlega inn í Islanders-teymið og opnuðu vefgallerí. Vísir/Vilhelm Gunnarsson
Margir íslenskir fagurkerar kannast við vefsíðuna Islanders þar sem þær Auður Gná og Íris Ann veita lesendum innsýn inn á spennandi og falleg heimili fólks. En nýjasta viðbótin við Islanders er vefgalleríið Islanders Gallery þar sem íslenskri myndlist er gert hátt undir höfði. Það eru þær Þórdís Erla Zoëga, Elísabet Alma Svendsen og Sigþóra Óðinsdóttir sem hafa umsjón með því. Hugmyndin með Islanders Gallery er að vera með sýningar sem eru einungis aðgengilegar á netinu að sögn Þórdísar Erlu. „Í upphafi hverrar sýningar verðum við með opnun í raunheimi sem mun standa í einn til tvo daga en svo í framhaldi mun hún lifa á netinu. Ef áhugi er fyrir hendi getur fólk haft samband við okkur og við komum því í samband listamanninn. Við erum ekki bundin við eitt tiltekið gallerírými heldur getum verið með sýningar víðsvegar, sem henta þá hverri sýningu,“ útskýrir Þórdís og bætir við að verkefnið fari vel af stað en það var myndlistarmaðurinn Kristinn Már Pálmason sem reið á vaðið með fyrstu sýningu Islanders Gallery. Opnunin á sýningu Kristins, sem ber heitið Go Pink Yourself, fór fram í einstöku húsi við Brekkugerði sem arkitektinn Högna Sigðurðardóttir hannaði. „Við höfum fengið gífurlega góð viðbrögð við galleríinu og opnunin gekk vonum framar. Gestum fannst spennandi að fá að upplifa list í svona sérstöku húsi. Við höfum fundið fyrir því að rekstrarform sem þetta er kærkomin tilbreyting frá hinu hefðbundna formi. Sýningar í óhefðbundnum rýmum er nálgun sem fólk er almennt hrifið af.“Verk eftir Kristin Má Pálmason.Myndlist verður aðgengilegri á netinuÞórdís telur að með auknu aðgengi muni áhugi fólks á myndlist aukast. „Myndlist hefur færst mikið yfir á netið, þar er allt aðgengilegt öllum stundum. Sýningar sem eru sýndar í raunheimi fá í framhaldi að lifa á netinu þannig að þetta er aðgengilegri vettvangur. Við erum að taka þetta á næsta stig og leyfa sýningunni frekar að standa á netinu, en fólki sem hefur áhuga á að fá að skoða verkin með eigin augum er velkomið að hafa samband og kíkja í kaffi til okkar og listamannsins. Það er mikilvægt að nýta bæði sviðin, að fólk geti upplifað myndlistina og komist í návígi við myndverkið en einnig að það sé í boði að auðvelda aðgengi og þá kemur vefurinn sterkur inn. Hvor vettvangurinn styrkir hinn. Við teljum að með aðgengilegri vettvangi verði myndlistin sýnilegri og þannig aukast líkur á að áhugi kvikni hjá fólki.“ Aðspurð út í fyrirkomulagið segir Þórdís að planið sé að láta hverja og eina sýningu standa í þrjá mánuði í senn á netinu þar sem verkin eru til sölu. „Hver sýning fær svo sína „raunheims“-opnun á nýjum og spennandi stað. Það er leyndarmál hvar næsta opnun verður haldin en okkar stefna er að finna alltaf áhugaverð rými sem passa hverjum listamanni fyrir sig. Við teljum að þetta fyrirkomulag muni auka áhuga fólks þar sem upplifunin og skynjunin verður alltaf mismunandi eftir staðsetningu.“
Mest lesið Danakonungur sagður hafa daðrað við Þórdísi Lífið „Hæfileikarnir hafa ekkert með kílóin að gera“ Lífið Vekur athygli á einkennum heilaslags í minningu móður sinnar Lífið Játning í Svörtum Söndum Lífið Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Tíska og hönnun Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? Menning Kynntust í fyrri seríunni Lífið Er einfaldlega að finna út úr kynhneigð sinni Lífið „Ég sparka bara í þig á eftir“ Lífið Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur Lífið Fleiri fréttir „Hæfileikarnir hafa ekkert með kílóin að gera“ Vekur athygli á einkennum heilaslags í minningu móður sinnar Danakonungur sagður hafa daðrað við Þórdísi Játning í Svörtum Söndum Tóm hamingja hjá forsetanum Hafi áður tekið of stóran skammt Er einfaldlega að finna út úr kynhneigð sinni Kynntust í fyrri seríunni Unnur Eggerts og Travis eiga von á öðru barni Skylduð til að bæta Baltasarsdóttir við „Verð hálf abbó þegar steggjamyndböndin eru sýnd“ „Ég sparka bara í þig á eftir“ Sögð hafa slitið trúlofuninni Er endaþarmsörvun bara fyrir homma? Teri Garr látin Gerður í Blush gladdi konur í Köben Magnað að aðdáendur flúri textana á sig Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur Kenningin sem knúði valdaránstilraunina Støre lét sig ekki vanta í Sundhöllina Bündchen 44 ára og ólétt Töpuðu dómsmáli vegna húss sem reyndist fullt af myglu Nær dauða en lífi eftir svæsna matareitrun á Michelin stað Skagastelpan sem gerðist menntaskólakennari í Flórída Nýfæddur sonur Gylfa og Alexöndru kominn með nafn Hryllilegar og gómsætar uppskriftir fyrir hrekkjavökuna Steindi skildi ekkert í dönsku á Barbie safni í Köben „Hvar annars staðar átti hjónaherbergið að vera en á sviðinu?“ Ragga Holm og Elma eignuðust dreng Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka Sjá meira