Innlent

Komust naumlega út úr brennandi íbúð á Miklubraut

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Vísir/Ernir
Tveir menn komust naumlega út úr brennandi kjallaraíbúð í fjölbýlishúsi við Miklubraut um klukkan fjögur í nótt. Slökkvilið frá tveimur stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang og var þá reykur farinn að berast um allt húsið þannig að ákveðið var að rýma aðrar íbúðir.

Eldur logaði í alrými í íbúðinni, en greiðlega gekk að slökkva hann. Íbúarnir tveir þurftu ekki að leita sér læknis vegna hugsanlegrar reykeitrunar. Slökkviliðið reykræsti húsið og fengu íbúar að snúa stil síns heima, enma mennirnir tveir, enda er íbúð þeirra óíbúðarhæf. Eldsupptök eru ókunn, en lögregla rannsakar nú málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×