Gerólík verk en mynda fallega heild 7. maí 2016 10:45 Þrír af fjórum stjórnendum kóranna sem fram koma, þau Hákon Leifsson, Arnhildur Valgarðsdóttir og Julian Hewlett. Mynd/Guðsteinn
Það er dálítið sérstakt að smala kórum saman til að halda stórtónleika, við höfum ekki verið mikið í því en það er skemmtilegt. Þetta gæti verið liður í samstarfi sókna, ég held að hún Arnhildur Valgarðsdóttir, organisti í Fella- og Hólakirkju, hafi átt frumkvæði að því. Hún kom líka með Óperukór Mosfellsbæjar inn í þetta, Julian Hewlett stjórnar honum, og fjórði kórinn er Vox populi, sem Hilmar Örn Agnarsson stjórnar,“ segir Hákon Leifsson, stjórnandi kórs Grafarvogskirkju. Hann lýkur lofsorði á söngkonur tvær sem sjá um einsönginn á tónleikunum, Kristínu R. Sigurðardóttur og Sigríði Ósk Kristjánsdóttur. „Kristín er með afar fallega rödd og hefur allt í þetta og sama er að segja um Sigríði Ósk, hún er alveg dásamleg.“ Það eru þrjú verk sem kórarnir flytja og Hákon segir þau öll mjög áheyrileg. „Kórverkin eru gerólík en mynda fallega heild,“ segir hann og lýsir þeim nánar. „Eitt þeirra er sálumessa eftir breska tónskáldið John Rutter, hann er svona hluti af elítunni í Bretlandi og samdi þessa sálumessu árið 1985. Hún er undurfögur enda hefur hún heillað áheyrendur hvarvetna. Hún er söngvæn og líka mjög aðgengileg fyrir fólk að hlusta á ef það kann að meta klassíska tónlist á annað borð.“ Annað glæsiverk tónlistarsögunnar sem kórarnir flytja er hin fræga Gloria eftir Antonio Vivaldi sem var samin á barokktímanum snemma á átjándu öld. „Það er bjart yfir þeirri tónlist, enda verkið samið til dýrðar guði,“ segir Hákon og nefnir þriðja verkið: „Það er Amore Mio eftir Julian M. Hewlett kórstjórnanda, sönglagaflokkur á ítölsku í fjórum þáttum, fluttur af Kristínu R. Sigurðardóttur og sönghópnum Boudoir.“ Hákon tekur fram að félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leiki undir ásamt Arnhildi og konsertmeistari sé Auður Hafsteinsdóttir. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 í dag og miðaverð er 3.500 krónur. gun@frettabladid.is
Mest lesið „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Lífið Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Lífið Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Lífið Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Lífið Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Lífið Sigmundur birtist fyrirvaralaust Lífið Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Lífið Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Lífið Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Lífið „Bio-Kult er eitt af því sem er alltaf til á okkar heimili“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Allt niður í tíu ára vilji viðhalda unglegri húð Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Leikarinn John Amos látinn Ævintýralegt líf í Stanford en saknar Vesturbæjarlaugar Á að pína sig í að stunda kynlíf til að minnka líkur á framhjáhaldi? Fór of nálægt arineldi og kveikti í andlitinu sínu Hlýlegt einbýli úr smiðju Rutar Kára Lára flakkar heimshorna á milli í einkaflugvél með lyfjaprinsinum Þraukuðu saman í tvo mánuði Nýr erfingi á leiðinni í Bretlandi „Herra kerran er til sölu“ Jákvæðni í algleymingi á Bylgjunni þessa vikuna Laufey og Júnía í fremstu röð í París Áttu að nefna kvenmannsnöfn sem byrja á D og F Flogið þangað sem enginn kemst nema í draumi „Stolt af mínum konum sem geisluðu af gleði“ Fóru líka upp á eiginkonuna fyrir besta útsýni landsins Draumkennt brúðkaup á Sardiníu Stórborgar fílingur í sögufrægu húsi Jóns Davíðs og Birgittu Ekki lengur undir sérstöku eftirliti Draumadrengur Söndru og Hilmars kominn í heiminn Sjá meira