Lífið

Skrjáfar í nýjum degi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ein myndanna á sýningunni.
Ein myndanna á sýningunni.
Bjarni Bernharður Bjarnason opnar málverkasýningu í Borgarbókasafninu/ Menningarhúsi, Gerðubergi í dag klukkan 14. Hún nefnist: Það skrjáfar í nýjum degi.

Efnistökin í málverkum Bjarna Bernharðar spanna vítt svið en hafa þó öll í sér þræði abstraktsjónar. Verk hans eru tilfinningarík og kröftug og tærleiki litanna nýtur sín í afmörkuðum litaflötum.

Honum hefur tekist að finna sjálfan sig í málverkinu og bera verkin sterk persónueinkenni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×