Ræðuna má sjá hér að neðan.
Aldrei fengið boð á EVE Fanfest en alltaf langað að mæta
Í ræðunni þakkaði Ólafur fyrir að hafa verið „loksins boðið að vera með á ráðstefnunni.“ Sagði forsetinn hann hafa langað í mörg ár að koma og vera með en aldrei fengið boð og ekki verið viss um hvort það væri gott fyrir ímynd hans að mæta á viðburðinn óboðinn. Uppskar Ólafur Ragnar mikinn hlátur úr sal við þessa einlægu játningu. CCP bauð raunar Ólafi að koma þegar þjóðin öll hélt að hann væri að hætta en forsetinn sagðist vona að það hafi ekki komið þeim illa að hann hafi ákveðið að bjóða sig fram aftur og hló. Þá þakkaði Ólafur gestum ráðstefnunnar kærlega fyrir að koma til Íslands og leggja þannig sköpunarkrafti Íslendinga lið.

„Og við bjóðum ykkur og fólki alls staðar úr heiminum að koma og vera með á nýjan hátt.“
Sjá einnig: Ólafur Ragnar svarar því ekki hvort réttlætanlegt sé að geyma eignir í skattaskjólum
Ólafur segist hafa talið að ævintýri sem þetta væri ómögulegt. „Við héldum alltaf að ef við hefðum sagt sjálfum okkur söguna væri það nóg. Það hefur gert okkur kleift að skrifa sögur og ljóð í gegnum aldirnar þrátt fyrir að við værum fátæk þjóð. Þegar nútímatónlist náði vinsældum hér á landi og Björk og Sykurmolarnir og fleiri tóku að semja tónlist, þá var aðalmarkmið þeirra ekki að ná heimsfrægð heldur aðeins að koma sér á framfæri á Íslandi. Þannig að þessi árlega samkoma er ótrúleg umbreyting sem hefur átt sér stað í gegnum CCP og í EVE heiminum.“ Hann sagði eitt forréttinda sinnar forsetatíðar, sem gefið hefði honum von, er að hafa fengið að fylgja fyrirtækinu í gegnum hæðir og lægðir. „Það virtist ómöguleiki að við gætum skapað í þessu landi nýjan heim þar sem fólk alls staðar að úr heiminum kæmi saman. En það hefur gerst.“

„Á hverju ári; nýjar bækur, ný frumkvöðlastarfsemi, ný fyrirtæki, nýjar kvikmyndir,“ taldi Ólafur upp. „Svarið er ótrúlegur sköpunarkraftur sem einhvern veginn hefur tekist að rækta í þessari litlu þjóð. Ykkar vera hér á hverju ári hefur mikil áhrif á okkar sjálfstraust til að halda áfram sköpun okkar,“ sagði Ólafur og sagðist vona að það væri ekki aðeins gaman á ráðstefnunni heldur gætu gestir einnig fundið til stolts yfir að hafa haft jákvæð áhrif á sköpunarkraft Íslendinga. Þá sagði Ólafur söguna af því hvernig hann hefði í hruninu ákveðið að ferðast í kringum landið.
Sjá einnig: Ólafur og Dorrit með tengsl við aflandsfélag
Sköpunarkrafturinn val 21. aldarinnar
„Ég mun aldrei gleyma því þegar bankahrunið varð, þegar allt fjármálakerfið okkar brotnaði niður ef svo má segja og við vorum sýnishorn númer eitt fyrir misheppnað fjármálakerfi. Þá ákvað ég, eins og séra sem veitir syndaaflausn að ferðast um landið og hjálpa þjóðinni í gegnum áfallið og sorgina. Það var kannski einmitt hlutverk forseta, að verða eins og kaþólskur prestur, þjónn á erfiðum tímum.“

Ræðuna má sjá hér að neðan.